Back to results

Bifröst University

Starfsánægja framlínufólks í ferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að kanna starfsánægju framlínustarfsmanna Kynnisferða, hvaða þættir hafa áhrif á starfsánægju starfsmanna og hvað getur fyrirtækið gert til að auka starfsánægju. Starfsánægja skiptir öllu máli fyrir bæði starfsmenn og vinnuveitendur, ánægðir starfsmenn sýna meiri hollustu og eru líklegri til að veita betri þjónustu. Starfsmenn í þjónustuveri og í afgreiðslu hjá Kynnisferðum eru fyrst og fremst í þjónustu- og sölustarfi og eru bæði í beinum samskiptum við viðskiptavini og í gegnum rafræna miðla. Góð þjónusta skilar ánægðum viðskiptavini og ánægður starfsmaður er líklegri til að veita góða þjónustu (Ómar H Kristmundsson, 2007). Hjá Kynnisferðum hafa verið töluverðar sviptingar undanfarið bæði hafa orðið miklar breytingar á stjórnunarteymi fyrirtækisins sem og miklar sveiflur í álagi, frá því að álag sé allt of mikið á fólki í það að grípa þurfi til uppsagna bæði vegna þjónustuskerðingar og þar sem verkefnin eru ekki næg fyrir þá starfsmenn sem eru fastráðnir. Fyrri hlutinn fjallar um hugtakið starfsánægju og um helstu kenningar því tengdu. Í seinni hlutanum er farið yfir niðurstöðu könnunar sem gerð var á meðal starfsmanna í afgreiðslu og þjónustuveri hjá Kynnisferðum og rýnt í niðurstöður. Send var út nafnlaus könnun á alla starfsmenn deildarinnar og þeir spurðir út þætti tengda starfsánægju.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Drífa Magnúsdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32410
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32410

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Drífa Magnúsdóttir 1970-. Starfsánægja framlínufólks í ferðaþjónustu. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32410