Back to results

Bifröst University

Eru líkamsræktarstöðvar að uppfylla þjónustuvæntingar viðskiptavina sinna?

Abstract

dc:description.abstract

Við rannsókn leitaðist höfundur eftir því að kanna hvort líkamsræktarstöðvar væru að uppfylla þjónustuvæntingar viðskiptavina sinna. Höfundur framkvæmdi þjónusturannsókn út frá Servqual. Með Servqual var saminn spurningalisti sem sneri að væntingum viðskiptavina annars vegar og skynjun þeirra á þjónustu hins vegar. Þegar niðurstöður lágu fyrir var bilið milli skynjaðrar þjónustu og væntinga reiknað saman. Við gerð rannsóknar var kannað hvaða þætti þarf að huga að til að þjónusta verði góð. Stjórnendur líkamsræktarstöðva þurfa að skoða vel hvernig þjónustuhættir fyrirtækisins eru. Ákveðin þjónustu viðmið þurfa að vera til staðar til að uppfylla væntingar viðskiptavina. Til að komast að því hvernig upplifun viðskiptavinar á þjónustu er þá getur fyrirtækið framkvæmt þjónusturannsókn. Slík rannsókn getur verið í formi Hulduheimsókna eða með Servqual. Niðurstöður leiddu í ljós að þrjár af þeim fjórum líkamsræktarstöðum sem teknar voru fyrir, voru ekki að mæta væntingum viðskiptavina sinna. Ein stóð upp úr með jákvætt þjónustubil. Þegar nánar var skoðað voru ýmsir þættir þjónustunnar sem fengu neikvæða niðurstöðu, fengu lélega einkunn frá þeim sem ekki sóttust eftir þjónustunni en jákvætt frá þeim sem sækjast eftir þjónustunni. Þegar skoðaðar eru heildartölur byggðar á svörum líkamsræktarstöðva á landinu eru þær á heildina litið ekki að mæta þörfum viðskiptavina og greinileg þörf fyrir úrbætur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Rún Steinarsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31887
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31887

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Rún Steinarsdóttir 1991-. Eru líkamsræktarstöðvar að uppfylla þjónustuvæntingar viðskiptavina sinna?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31887