Back to results

Bifröst University

Ef - eðli sjálfsefasemda í listrænu og skapandi vinnuferli

Abstract

dc:description.abstract

Sjálfsefasemdir hafa verið rannsóknarefni heimspekinga, félagsfræðinga og sálfræðinga í áraraðir en fyrirbærið hefur einnig snertifleti við menningarstjórnun. Í þessu verkefni verða sjálfsefasemdir nokkurra listamanna skoðaðar og varpað verður fram spurningum um eðli sjálfsgagnrýni og óöryggis í skapandi vinnuferli. Af frásögnum listamannanna í þýðinu að dæma, virðast sjálfsefasemdir vera órjúfanlegur hluti af sköpunarferli þeirra og hafa mikil áhrif á hvernig þeir vinna. Sjálfsefasemdir þátttakenda í skapandi verkefnum virðast því geta haft áhrif á framleiðni, tímaáætlanir, viðhorf, samstarfsgetu og lokaútkomu. Þó áhrif sjálfsefa á frammistöðu hafi til dæmis verið rannsökuð meðal íþróttamanna, eins og fjallað verður nánar um síðar, hafa áhrif sjálfsefasemda á listræna og skapandi vinnu ekki verið rannsökuð, að mér vitandi. En til að skilja betur hvers konar afl sjálfsefi er í listrænu vinnuferli, ákvað ég að nálgast viðfangsefnið með því að gera eins konar eigindlega rannsókn og taka ítarleg viðtöl við fimm íslenska listamenn. Í þýðinu eru listamenn sem fást við ólíkar listgreinar, ritstörf, tónlist, myndlist og leiklist og eiga það sameiginlegt að hafa allir náð langt á sínu sviði og öðlast viðurkenningu fyrir störf sín. Í viðtölunum bað ég listamennina um að lýsa reynslu sinni af sjálfsefasemdum. Viðtölin voru tekin upp á vídeó og klippt saman í heimildarmynd. Þetta verkefni samanstendur því af tveimur hlutum, heimildarmynd og skýrslu sem saman mynda eina heild. Í skýrslunni er útskýrt hvaða ástæður liggja að baki vali á rannsóknarefni, hvaða aðferð stuðst var við við gerð myndarinnar og muninn á því sem til stóð að gera og hinni eiginlegu útkomu. Myndin er framsetning á niðurstöðum rannsóknarinnar. Hún er aðgengileg á Youtube.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þóra Tómasdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29167
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29167

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þóra Tómasdóttir 1979-. Ef - eðli sjálfsefasemda í listrænu og skapandi vinnuferli. 2017. http://hdl.handle.net/1946/29167