{"id":{"repo_id":"bifrost","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/29167"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/bifrost/oai:skemman.is:1946/29167","repository":{"repo_id":"bifrost","name":"Bifröst University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Ef - eðli sjálfsefasemda í listrænu og skapandi vinnuferli","abstract":"Sjálfsefasemdir hafa verið rannsóknarefni heimspekinga, félagsfræðinga og sálfræðinga í áraraðir en fyrirbærið hefur einnig snertifleti við menningarstjórnun. Í þessu verkefni verða sjálfsefasemdir nokkurra listamanna skoðaðar og varpað verður fram spurningum um eðli sjálfsgagnrýni og óöryggis í skapandi vinnuferli. Af frásögnum listamannanna í þýðinu að dæma, virðast sjálfsefasemdir vera órjúfanlegur hluti af sköpunarferli þeirra og hafa mikil áhrif á hvernig þeir vinna. Sjálfsefasemdir þátttakenda í skapandi verkefnum virðast því geta haft áhrif á framleiðni, tímaáætlanir, viðhorf, samstarfsgetu og lokaútkomu. Þó áhrif sjálfsefa á frammistöðu hafi til dæmis verið rannsökuð meðal íþróttamanna, eins og fjallað verður nánar um síðar, hafa áhrif sjálfsefasemda á listræna og skapandi vinnu ekki verið rannsökuð, að mér vitandi. En til að skilja betur hvers konar afl sjálfsefi er í listrænu vinnuferli, ákvað ég að nálgast viðfangsefnið með því að gera eins konar eigindlega rannsókn og taka ítarleg viðtöl við fimm íslenska listamenn. Í þýðinu eru listamenn sem fást við ólíkar listgreinar, ritstörf, tónlist, myndlist og leiklist og eiga það sameiginlegt að hafa allir náð langt á sínu sviði og öðlast viðurkenningu fyrir störf sín. Í viðtölunum bað ég listamennina um að lýsa reynslu sinni af sjálfsefasemdum. Viðtölin voru tekin upp á vídeó og klippt saman í heimildarmynd. Þetta verkefni samanstendur því af tveimur hlutum, heimildarmynd og skýrslu sem saman mynda eina heild. Í skýrslunni er útskýrt hvaða ástæður liggja að baki vali á rannsóknarefni, hvaða aðferð stuðst var við við gerð myndarinnar og muninn á því sem til stóð að gera og hinni eiginlegu útkomu. Myndin er framsetning á niðurstöðum rannsóknarinnar. Hún er aðgengileg á Youtube.","abstract_html":"Sjálfsefasemdir hafa verið rannsóknarefni heimspekinga, félagsfræðinga og sálfræðinga í áraraðir en fyrirbærið hefur einnig snertifleti við menningarstjórnun. Í þessu verkefni verða sjálfsefasemdir nokkurra listamanna skoðaðar og varpað verður fram spurningum um eðli sjálfsgagnrýni og óöryggis í skapandi vinnuferli. Af frásögnum listamannanna í þýðinu að dæma, virðast sjálfsefasemdir vera órjúfanlegur hluti af sköpunarferli þeirra og hafa mikil áhrif á hvernig þeir vinna. Sjálfsefasemdir þátttakenda í skapandi verkefnum virðast því geta haft áhrif á framleiðni, tímaáætlanir, viðhorf, samstarfsgetu og lokaútkomu. Þó áhrif sjálfsefa á frammistöðu hafi til dæmis verið rannsökuð meðal íþróttamanna, eins og fjallað verður nánar um síðar, hafa áhrif sjálfsefasemda á listræna og skapandi vinnu ekki verið rannsökuð, að mér vitandi. En til að skilja betur hvers konar afl sjálfsefi er í listrænu vinnuferli, ákvað ég að nálgast viðfangsefnið með því að gera eins konar eigindlega rannsókn og taka ítarleg viðtöl við fimm íslenska listamenn. Í þýðinu eru listamenn sem fást við ólíkar listgreinar, ritstörf, tónlist, myndlist og leiklist og eiga það sameiginlegt að hafa allir náð langt á sínu sviði og öðlast viðurkenningu fyrir störf sín. Í viðtölunum bað ég listamennina um að lýsa reynslu sinni af sjálfsefasemdum. Viðtölin voru tekin upp á vídeó og klippt saman í heimildarmynd. Þetta verkefni samanstendur því af tveimur hlutum, heimildarmynd og skýrslu sem saman mynda eina heild. Í skýrslunni er útskýrt hvaða ástæður liggja að baki vali á rannsóknarefni, hvaða aðferð stuðst var við við gerð myndarinnar og muninn á því sem til stóð að gera og hinni eiginlegu útkomu. Myndin er framsetning á niðurstöðum rannsóknarinnar. Hún er aðgengileg á Youtube.","abstract_has_math":false,"creators":["Þóra Tómasdóttir 1979-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn á Bifröst"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2017,"date_issued":"2017-10-17T14:18:23Z","date_published":"2017-10-17T14:18:23Z","updated_at":"2026-07-27T18:50:14Z","subjects":["Meistaraprófsritgerðir","Félagsvísindi","Menning","Gagnrýni","Verkferlar","Listamenn","Listsköpun"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/29167","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn á Bifröst"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Þóra Tómasdóttir 1979-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2017-10-17T14:18:23Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2017-10-17T14:18:23Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2017-10-17T14:18:23Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Meistaraprófsritgerðir","Félagsvísindi","Menning","Gagnrýni","Verkferlar","Listamenn","Listsköpun"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/29167"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description","label":"Description","values":["Lokaverkefnið er tvíþætt, annars vegar þessi skýrsla og hinsvegar heimildarmynd á þessari slóð: https://www.youtube.com/watch?v=wcNuMHLgGMg"]},{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Sjálfsefasemdir hafa verið rannsóknarefni heimspekinga, félagsfræðinga og sálfræðinga í áraraðir en fyrirbærið hefur einnig snertifleti við menningarstjórnun. Í þessu verkefni verða sjálfsefasemdir nokkurra listamanna skoðaðar og varpað verður fram spurningum um eðli sjálfsgagnrýni og óöryggis í skapandi vinnuferli. Af frásögnum listamannanna í þýðinu að dæma, virðast sjálfsefasemdir vera órjúfanlegur hluti af sköpunarferli þeirra og hafa mikil áhrif á hvernig þeir vinna. Sjálfsefasemdir þátttakenda í skapandi verkefnum virðast því geta haft áhrif á framleiðni, tímaáætlanir, viðhorf, samstarfsgetu og lokaútkomu. Þó áhrif sjálfsefa á frammistöðu hafi til dæmis verið rannsökuð meðal íþróttamanna, eins og fjallað verður nánar um síðar, hafa áhrif sjálfsefasemda á listræna og skapandi vinnu ekki verið rannsökuð, að mér vitandi. En til að skilja betur hvers konar afl sjálfsefi er í listrænu vinnuferli, ákvað ég að nálgast viðfangsefnið með því að gera eins konar eigindlega rannsókn og taka ítarleg viðtöl við fimm íslenska listamenn. Í þýðinu eru listamenn sem fást við ólíkar listgreinar, ritstörf, tónlist, myndlist og leiklist og eiga það sameiginlegt að hafa allir náð langt á sínu sviði og öðlast viðurkenningu fyrir störf sín. Í viðtölunum bað ég listamennina um að lýsa reynslu sinni af sjálfsefasemdum. Viðtölin voru tekin upp á vídeó og klippt saman í heimildarmynd. Þetta verkefni samanstendur því af tveimur hlutum, heimildarmynd og skýrslu sem saman mynda eina heild. Í skýrslunni er útskýrt hvaða ástæður liggja að baki vali á rannsóknarefni, hvaða aðferð stuðst var við við gerð myndarinnar og muninn á því sem til stóð að gera og hinni eiginlegu útkomu. Myndin er framsetning á niðurstöðum rannsóknarinnar. Hún er aðgengileg á Youtube."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Ef - eðli sjálfsefasemda í listrænu og skapandi vinnuferli","If - self doubt in atristic and creative working process"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn á Bifröst"],"dc:creator":["Þóra Tómasdóttir 1979-"],"dc:date.accessioned":["2017-10-17T14:18:23Z"],"dc:date.available":["2017-10-17T14:18:23Z"],"dc:date.issued":["2017-10-17T14:18:23Z"],"dc:description":["Lokaverkefnið er tvíþætt, annars vegar þessi skýrsla og hinsvegar heimildarmynd á þessari slóð: https://www.youtube.com/watch?v=wcNuMHLgGMg"],"dc:description.abstract":["Sjálfsefasemdir hafa verið rannsóknarefni heimspekinga, félagsfræðinga og sálfræðinga í áraraðir en fyrirbærið hefur einnig snertifleti við menningarstjórnun. Í þessu verkefni verða sjálfsefasemdir nokkurra listamanna skoðaðar og varpað verður fram spurningum um eðli sjálfsgagnrýni og óöryggis í skapandi vinnuferli. Af frásögnum listamannanna í þýðinu að dæma, virðast sjálfsefasemdir vera órjúfanlegur hluti af sköpunarferli þeirra og hafa mikil áhrif á hvernig þeir vinna. Sjálfsefasemdir þátttakenda í skapandi verkefnum virðast því geta haft áhrif á framleiðni, tímaáætlanir, viðhorf, samstarfsgetu og lokaútkomu. Þó áhrif sjálfsefa á frammistöðu hafi til dæmis verið rannsökuð meðal íþróttamanna, eins og fjallað verður nánar um síðar, hafa áhrif sjálfsefasemda á listræna og skapandi vinnu ekki verið rannsökuð, að mér vitandi. En til að skilja betur hvers konar afl sjálfsefi er í listrænu vinnuferli, ákvað ég að nálgast viðfangsefnið með því að gera eins konar eigindlega rannsókn og taka ítarleg viðtöl við fimm íslenska listamenn. Í þýðinu eru listamenn sem fást við ólíkar listgreinar, ritstörf, tónlist, myndlist og leiklist og eiga það sameiginlegt að hafa allir náð langt á sínu sviði og öðlast viðurkenningu fyrir störf sín. Í viðtölunum bað ég listamennina um að lýsa reynslu sinni af sjálfsefasemdum. Viðtölin voru tekin upp á vídeó og klippt saman í heimildarmynd. Þetta verkefni samanstendur því af tveimur hlutum, heimildarmynd og skýrslu sem saman mynda eina heild. Í skýrslunni er útskýrt hvaða ástæður liggja að baki vali á rannsóknarefni, hvaða aðferð stuðst var við við gerð myndarinnar og muninn á því sem til stóð að gera og hinni eiginlegu útkomu. Myndin er framsetning á niðurstöðum rannsóknarinnar. Hún er aðgengileg á Youtube."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/29167"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Meistaraprófsritgerðir","Félagsvísindi","Menning","Gagnrýni","Verkferlar","Listamenn","Listsköpun"],"dc:title":["Ef - eðli sjálfsefasemda í listrænu og skapandi vinnuferli","If - self doubt in atristic and creative working process"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T18:50:14Z"}