Back to results

Bifröst University

„Hvaða augum lít ég sjálfa mig?“: áhrif langvarandi þátttöku ungra kvenna í kórstarfi á mótun listrænnar sjálfsmyndar, merkingarbær reynsla þeirra og væntingar til frama á sviði söngsins

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er skoðuð langvarandi þátttaka ungra kvenna í kórstarfi Aurora og áhrif þess á mótun sjálfsmyndar, mótun listræns sjálfs, mótun sjálfsmyndar listamanns og væntingar til frama á sviði söngs og tónlistariðkunar. Verndandi þættir ástundunar eru einnig skoðaðir. Kórinn Aurora er kirkjudeild Stúlknakórs Reykjavíkur og á aðsetur sitt í sönghúsi Domus Vox undir listrænni stjórn Margrétar Jóhönnu Pálmadóttur. Gögn rannsóknar byggja á viðtölum við stjórnendur sönghússins, tvo kórstjóra, átta meðlimi kórsins og niðurstöðum matskvarða sem 20 kórmeðlimir svöruðu. Niðurstöður sýna að mikill meirihluti kórmeðlima telur að kórstarfið hafi mótað sjálfsmynd þeirra og mótað með þeim listræna sjálfsmynd sem endurspeglast í upplifun á að söngur er stór hluti sjálfsins. Færri hafa mótað sjálfsmynd listamanns, um helmingur kórmeðlima hafa framavæntingar á sviði söngs og tónlistar og tengist það menntunarstigi í söng. Verndandi þættir ástundunar felast meðal annars í umgjörð kórstarfsins af hálfu stjórnenda, jákvæðum gildum þess, áhuga stúlknanna, söngnámi og framgangi þeirra. Niðurstöður matskvarða sýna að aldurshópur 18-19 ára stúlkna sker sig úr en þær meta síður mikilvægi félagslegs samþykkis, þætti sem styðja við áhugahvöt, áhrif kórstarfs á persónustyrk og upplifa minni ánægju af kórstarfinu en þær sem eldri eru. Samræmi er í svörum aldursflokka við mat á eigin hæfni og ábyrgð gagnvart kórstarfinu. Stúlkur 20 ára og eldri telja að kórstarf hafi stuðlað að auknum persónustyrk og taka afgerandi afstöðu til þess að kórstarfið sé gefandi, veiti þeim gleði og hafi jákvæð áhrif á líðan þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Kristín Jónsdóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28888
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28888

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Kristín Jónsdóttir 1966-. „Hvaða augum lít ég sjálfa mig?“: áhrif langvarandi þátttöku ungra kvenna í kórstarfi á mótun listrænnar sjálfsmyndar, merkingarbær reynsla þeirra og væntingar til frama á sviði söngsins. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28888