Back to results

Bifröst University

List augnabliksins : fræðslustarf Borgarleikhússins

Abstract

dc:description.abstract

Fræðslustarf í leikhúsi hefur verið í stöðugri þróun víðs vegar í heiminum eftir að markvisst var farið að huga að því í upphafi 20. aldar. Hérlendis hefur aukin meðvitund varðandi fræðslu barna og ungmenna um menningu verið að aukast, en áhersla á gerð menningarstefnu hjá ríki og sveitarfélögum hefur beint athyglinni enn frekar að málefninu. Í rannsókninni er leitað eftir svörum um hver staða fræðslustarfsemi sé í leikhúsum með sérstakri áherslu á fræðslustarf Borgarleikhússins. „Þarf fræðslustarf í leikhúsum að berjast fyrir tilvist sinni?” er spurningin sem leitast verður eftir að svara. Ólíkir þættir hafa áhrif á starfið, hvort sem það er rekstur eða samstarf. Þessir þættir verða hér settir í samhengi og starfið skoðað í samanburði við rannsóknir, kenningar og starf erlendis sem hér á landi. Markmið rannsóknarinnar er að fara yfir þá þætti sem hafa sýnt í erlendum rannsóknum að hafi skilað árangri á þeim forsendum að miðla menningu til barna og ungmenna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að það sé verðugt að skoða þetta málefni og virkja umræður á þeim grundvelli að leikhús sé fyrir alla en til þess að starf þrífist til langtíma þarf að ala upp kynslóð sem nýtur þess að fara í leikhús.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28422
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28422

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir 1988-. List augnabliksins : fræðslustarf Borgarleikhússins. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28422