Bifröst University
Frá útrás til endurreisnar : skipulagsbreytingar Kaupþings banka / Arion banka 2003-2014
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er tvíþætt, annars vegar að skoða breytingar á stefnumiðaðri stjórnun og skipulagi íslenskra fyrirtækja eftir hrun og hins vegar að skoða hvort slíkar breytingar hafi aukið áherslu á innri ferla og gæði. Rannsóknin byggir meðal annars á niðurstöðum INNFORM-könnunarinnar sem framkvæmd var árið 2015 af höfundi þessarar ritgerðar og var ætlað að gefa innsýn í hvort og þá hvernig slík þróun hefði orðið á skipulagi stærstu íslensku fyrirtækjanna á árunum 2010–2014. Einnig var skoðað raundæmi, Kaupþing banki sem varð Arion banki árið 2009 og viðtöl tekin við stjórnendur bankans í því skyni að fá fram viðhorf þeirra til þeirra breytinga sem urðu á fyrirtækinu á árunum 2003–2014. Notast var við lýsandi tölfræði, krosskeyrslur og fylgnimælingar við greiningu niðurstaðna. Helstu niðurstöður gefa vísbendingar um að stjórnskipulag íslenskra fyrirtækja hafi tekið breytingum eftir hrun og að þau leggi meiri áherslu á innri ferla, skilvirkni og gæði en áður. Umboðsveitingar fyrirtækja hafa aukist og sá þáttur hefur marktæk tengsl við ferlastýrt skipulag, það er fléttu og verkefnaskipulag. Á móti kemur að áhersla á ytri þætti eins og viðskiptavini hefur minnkað mikið eftir hrun en þó virðist sú áhersla nú fara vaxandi aftur. Flest höfðu fyrirtækin sem svöruðu könnuninni farið í gegnum endurskipulagningu á vinnuferlum og hafði hún skilað árangri. Þegar horft var til þeirra þátta sem mynda gæði reyndist aðeins vera marktæk fylgni milli stjórnunar upplýsinga og árangurs af endurgerð vinnuferla. Niðurstöður sýna að töluvert hefur dregið úr því eftir hrun að fyrirtæki kynni megingildi og hlutverk formlegrar stefnu. Hins vegar sýna niðurstöður að þessir þættir formlegrar stefnu hafa jákvæð tengsl við heildarþátt gæða. Þessar niðurstöður virðast vera nokkuð í takt við þær breytingar sem orðið hafa á skipulagi Kaupþings/Arion banka. Mikil áhersla er lögð á formlega stefnu innan bankans og áhersluþættir hennar virðast hafa skilað árangri. Viðskiptavinurinn er miðlægur í starfsemi bankans og allir ferlar taka mið af honum. Með innleiðingu straumlínustjórnunar (e. lean management) jókst skilvirkni bankans til muna og starfsemin virðist nú vera drifin áfram af þáttum sem mynda gæði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Marín Þórarinsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28414
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28414