Abstract
dc:description.abstractDýrðarljóminn sem umvefur starf flugfreyja er flókið fyrirbæri sem vandasamt er að henda reiður á. Markmið þessarar rannsóknar var að gera ímynd flugfreyjunnar skil, öðlast skilning á hvernig viðmælendur mínir, flugfreyjurnar, upplifðu þessa ímynd og hvort hún væri í tengslum við raunverulegt starf þeirra. Það var gert með að fá innsýn í starf flugfreyjunnar á Íslandi og til þess þótti nálgun eigindlegrar aðferðarfræði henta best. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að viðmælendum þótti öllum nema einum ímynd flugfreyjunnar vera sveipuð þessum ljóma, sem þeir vildu gangast við og viðhalda. Samt sem áður nefndu viðmælendurnir aðra þætti í starfinu sem eru faldir á bak við dýrðarljómann, meðal annars álagið sem fylgir því. Enginn einn sér um að viðhalda staðalímynd flugfreyjunnar heldur eru hér margir samverkandi þættir að verki: Einkennisbúningurinn gegnir veigamiklu hlutverki, saga flugfreyjustarfsins, flugfélagið, markaðsöflin, flugfreyjurnar sjálfar og farþegarnir – útkoman er þessi ímynd flugfreyjunnar, sem er í litlum tengslum við raunverulegt starf hennar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Andrea Björgvinsdóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28350
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28350