{"id":{"repo_id":"bifrost","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/28350"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/bifrost/oai:skemman.is:1946/28350","repository":{"repo_id":"bifrost","name":"Bifröst University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Dýrðarljómi háloftanna","abstract":"Dýrðarljóminn sem umvefur starf flugfreyja er flókið fyrirbæri sem vandasamt er að henda reiður á. Markmið þessarar rannsóknar var að gera ímynd flugfreyjunnar skil, öðlast skilning á hvernig viðmælendur mínir, flugfreyjurnar, upplifðu þessa ímynd og hvort hún væri í tengslum við raunverulegt starf þeirra. Það var gert með að fá innsýn í starf flugfreyjunnar á Íslandi og til þess þótti nálgun eigindlegrar aðferðarfræði henta best. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að viðmælendum þótti öllum nema einum ímynd flugfreyjunnar vera sveipuð þessum ljóma, sem þeir vildu gangast við og viðhalda. Samt sem áður nefndu viðmælendurnir aðra þætti í starfinu sem eru faldir á bak við dýrðarljómann, meðal annars álagið sem fylgir því. Enginn einn sér um að viðhalda staðalímynd flugfreyjunnar heldur eru hér margir samverkandi þættir að verki: Einkennisbúningurinn gegnir veigamiklu hlutverki, saga flugfreyjustarfsins, flugfélagið, markaðsöflin, flugfreyjurnar sjálfar og farþegarnir – útkoman er þessi ímynd flugfreyjunnar, sem er í litlum tengslum við raunverulegt starf hennar.","abstract_html":"Dýrðarljóminn sem umvefur starf flugfreyja er flókið fyrirbæri sem vandasamt er að henda reiður á. Markmið þessarar rannsóknar var að gera ímynd flugfreyjunnar skil, öðlast skilning á hvernig viðmælendur mínir, flugfreyjurnar, upplifðu þessa ímynd og hvort hún væri í tengslum við raunverulegt starf þeirra. Það var gert með að fá innsýn í starf flugfreyjunnar á Íslandi og til þess þótti nálgun eigindlegrar aðferðarfræði henta best. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að viðmælendum þótti öllum nema einum ímynd flugfreyjunnar vera sveipuð þessum ljóma, sem þeir vildu gangast við og viðhalda. Samt sem áður nefndu viðmælendurnir aðra þætti í starfinu sem eru faldir á bak við dýrðarljómann, meðal annars álagið sem fylgir því. Enginn einn sér um að viðhalda staðalímynd flugfreyjunnar heldur eru hér margir samverkandi þættir að verki: Einkennisbúningurinn gegnir veigamiklu hlutverki, saga flugfreyjustarfsins, flugfélagið, markaðsöflin, flugfreyjurnar sjálfar og farþegarnir – útkoman er þessi ímynd flugfreyjunnar, sem er í litlum tengslum við raunverulegt starf hennar.","abstract_has_math":false,"creators":["Andrea Björgvinsdóttir 1980-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn á Bifröst"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2017,"date_issued":"2017-06-20","date_published":"2017-06-20","updated_at":"2026-07-27T18:50:45Z","subjects":["Meistaraprófsritgerðir","Félagsvísindi","Flugliðar","Kvenleiki","Tilfinningar"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/28350","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn á Bifröst"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Andrea Björgvinsdóttir 1980-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2017-06-20T09:23:18Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2017-06-20T09:23:18Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2017-06-20"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Meistaraprófsritgerðir","Félagsvísindi","Flugliðar","Kvenleiki","Tilfinningar"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/28350"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Dýrðarljóminn sem umvefur starf flugfreyja er flókið fyrirbæri sem vandasamt er að henda reiður á. Markmið þessarar rannsóknar var að gera ímynd flugfreyjunnar skil, öðlast skilning á hvernig viðmælendur mínir, flugfreyjurnar, upplifðu þessa ímynd og hvort hún væri í tengslum við raunverulegt starf þeirra. Það var gert með að fá innsýn í starf flugfreyjunnar á Íslandi og til þess þótti nálgun eigindlegrar aðferðarfræði henta best. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að viðmælendum þótti öllum nema einum ímynd flugfreyjunnar vera sveipuð þessum ljóma, sem þeir vildu gangast við og viðhalda. Samt sem áður nefndu viðmælendurnir aðra þætti í starfinu sem eru faldir á bak við dýrðarljómann, meðal annars álagið sem fylgir því. Enginn einn sér um að viðhalda staðalímynd flugfreyjunnar heldur eru hér margir samverkandi þættir að verki: Einkennisbúningurinn gegnir veigamiklu hlutverki, saga flugfreyjustarfsins, flugfélagið, markaðsöflin, flugfreyjurnar sjálfar og farþegarnir – útkoman er þessi ímynd flugfreyjunnar, sem er í litlum tengslum við raunverulegt starf hennar."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Dýrðarljómi háloftanna","\"Glamourous\" life of flight"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn á Bifröst"],"dc:creator":["Andrea Björgvinsdóttir 1980-"],"dc:date.accessioned":["2017-06-20T09:23:18Z"],"dc:date.available":["2017-06-20T09:23:18Z"],"dc:date.issued":["2017-06-20"],"dc:description.abstract":["Dýrðarljóminn sem umvefur starf flugfreyja er flókið fyrirbæri sem vandasamt er að henda reiður á. Markmið þessarar rannsóknar var að gera ímynd flugfreyjunnar skil, öðlast skilning á hvernig viðmælendur mínir, flugfreyjurnar, upplifðu þessa ímynd og hvort hún væri í tengslum við raunverulegt starf þeirra. Það var gert með að fá innsýn í starf flugfreyjunnar á Íslandi og til þess þótti nálgun eigindlegrar aðferðarfræði henta best. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að viðmælendum þótti öllum nema einum ímynd flugfreyjunnar vera sveipuð þessum ljóma, sem þeir vildu gangast við og viðhalda. Samt sem áður nefndu viðmælendurnir aðra þætti í starfinu sem eru faldir á bak við dýrðarljómann, meðal annars álagið sem fylgir því. Enginn einn sér um að viðhalda staðalímynd flugfreyjunnar heldur eru hér margir samverkandi þættir að verki: Einkennisbúningurinn gegnir veigamiklu hlutverki, saga flugfreyjustarfsins, flugfélagið, markaðsöflin, flugfreyjurnar sjálfar og farþegarnir – útkoman er þessi ímynd flugfreyjunnar, sem er í litlum tengslum við raunverulegt starf hennar."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/28350"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Meistaraprófsritgerðir","Félagsvísindi","Flugliðar","Kvenleiki","Tilfinningar"],"dc:title":["Dýrðarljómi háloftanna","\"Glamourous\" life of flight"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T18:50:45Z"}