Back to results

Bifröst University

Endurspeglar ánægja viðskiptavina íslenskra trygginga- og fjarskiptafélaga tryggð þeirra? Hver er skoðun stjórnenda félaganna á sambandi ánægju og tryggðar viðskiptavina?

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar var að skoða samband ánægju og tryggðar meðal viðskiptavina íslenskra trygginga- og fjarskiptafélaga. Markmið rannsóknarverkefnisins var að svara tveimur rannsóknarspurningum sem sneru að því að kanna hvort ánægja viðskiptavina trygginga- og fjarskiptafélaga endurspegli tryggð þeirra við fyrirtækin og spyrja markaðsstjóra fyrirtækjanna um skoðun þeirra á ánægju og tryggð viðskiptavina. Rannsóknarverkefnið var bæði eigindleg og megindleg rannsókn í formi spurningalista og spurningakönnunar. Megindleg rannsókn fór fram með þeim hætti að send var út spurningakönnun með rafrænum hætti á samfélagsmiðilinn Facebook þar sem alls 218 þátttakendur svöruðu könnuninni. Eigindleg rannsókn var í formi spurningalista sem sendur var út á markaðsstjóra íslensku trygginga- og fjarskiptafélaganna þar sem höfundur leitaði svara við fjórum spurningum um viðhorf og skoðun þeirra á sambandi ánægju og tryggðar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að ánægja viðskiptavina fjarskiptafélaganna endurspeglast bæði í hegðunar- og viðhorfstryggð þeirra en hvað viðskiptavini tryggingafélaganna varðar þá endurspeglast ánægja aðeins í hegðunartryggð þeirra en ekki viðhorfstryggð. Almennt er hegðunartryggð viðskiptavina beggja geira sterk, en niðurstöður rannsóknarinnar sýna að viðhorfstryggð er töluvert veikari meðal viðskiptavina tryggingafélaganna þar sem þeir eru mjög líklegir til að færa viðskipti sín annað, byðist þeim ódýrari vara og þjónusta annars staðar. Skoðun markaðsstjóra fyrirtækjanna er almennt jákvæð gagnvart sambandi ánægju og tryggðar og trúa þeir því að ánægja viðskiptavina endurspegli tryggð þeirra við fyrirtækin. Það gæti því verið umhugsunarefni fyrir íslensk tryggingafélög að kafa dýpra í samband sitt við sína núverandi viðskiptavina til að tryggja það að ánægðir viðskiptavinir séu tryggir viðskiptavinir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elín Ósk Ólafsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28344
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28344

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elín Ósk Ólafsdóttir 1990-. Endurspeglar ánægja viðskiptavina íslenskra trygginga- og fjarskiptafélaga tryggð þeirra? Hver er skoðun stjórnenda félaganna á sambandi ánægju og tryggðar viðskiptavina?. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28344