Abstract
dc:description.abstractIðnaðarfyrirtæki hafa lítið verið skoðuð hér á landi hvað varðar þjónandi forystu og því óplægður akur. Það er því mikilvægt að skoða þetta svið nánar til þess að efla þekkingarþróun um þjónandi forystu og til að víkka sjóndeildarhringinn. Þjónandi forysta einkennist af trausti og jafningjabrag, hógværð, hugrekki, umhyggju og aga. Vera jafn meðal jafningja og hugsa um hag heildarinnar. Jafningjabragur tengist hvað mest við niðurstöðurnar. Tilgangur ritgerðar er að koma af stað umræðu meðal stjórnenda iðnaðarfyrirtækjum um góða stjórnunarhætti sem þjónandi forysta er. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvort þjónandi forysta sé til staðar í iðnaðarfyrirtækjum og ef svo er hvernig birtist hún. Það var gert með því að kanna viðhorf starfsmanna til næsta yfirmanns. Til að skoða þetta voru tekin djúpviðtöl við átta starfsmenn í iðnaðarfyrirtækjum víðsvegar um Ísland. Spurningarammi fyrir opnar spurningarnar var unnin út frá hugmyndum van Dierendonck um þjónandi forystu. Við greiningu gagna var notuð eigindleg aðferð og voru sjö þemu greind og tvö undirþemu. Niðurstöðurnar sýna að þjónandi forysta fyrir finnst í meðallagi í iðnaðarfyrirtækjum. Áhersluþættir sem viðmælendur lögðu áherslu á voru góður yfirmaður sem hefur slæman yfirmann sjálfur, að pýramídi eða skipurit fyrirtækisins væri að snúast við, samskipti og liðsheild, samskipti góð og slæm, líðan í starfi og stjórnandi en ekki liðtogi. Einnig voru áhersluþættirnir yfirmannshroki og keðjan er aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn. Það er ljóst að sú þjónandi forysta sem er til staðar er notuð ómeðvitað í iðnaðarfyrirtækjum. Þjónandi forysta er ekki meðvituð og þar með ekki markmið hjá fyrirtækjunum að nota hana við stjórnun. Einnig gefa niðurstöður vísbendingar um viðmælendur eru almennt starfsánægðir í starfi þrátt fyrir mikið vinnuálag og stress. Hjá þeim viðmælendum sem lýstu ánægju í starfi var ánægja með yfirmann einnig til staðar sem gefur ákveðna vísbendingu um að þjónandi forysta og starfsánægja haldast í hendur í iðnaðarfyrirtækjum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Svanhvít Pétursdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26830
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26830