Back to results

Bifröst University

Velgengni leiðtoga snýst um vöxt og árangur annarra : áherslur stjórnenda "fyrirmyndarfyrirtækja" og hugmyndafræði þjónandi forystu

Abstract

dc:description.abstract

Stjórnendur fyrirtækja sinna margþættu og mikilvægu ábyrgðarhlutverki sem helgast af því að stýra starfsemi þeirra þannig að reksturinn sé arðbær. Þeir þurfa að hafa skýra sýn og hugsjón fyrir framtíð fyrirtækisins en ekki síður að huga að starfsmönnum sínum sem er ein dýrmætasta auðlind fyrirtækja að margra mati. Gæta þarf að hagsmunum þeirra og líðan svo vinnuframlag þeirra sé sem mest virðisaukandi. Framkoma stjórnenda skiptir miklu máli til að ná hámarksárangri og hafa farsælir stjórnendur dýrmæta reynslu að miðla til annarra. Viðfangsefni þessa verkefnis er að kanna áherslur stjórnenda fyrirtækja sem skarað hafa framúr hvað ánægju starfsmanna snertir í árlegri könnun VR um „Fyrirtæki ársins“. Ennfremur er markmiðið að kanna hvort og þá hvernig áherslur þeirra endurspegli hugmyndafræði þjónandi forystu. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við sjö stjórnendur slíkra fyrirtækja til að varpa ljósi á hvaða áherslur bera árangur í forystuhlutverki. Niðurstöður benda til mikilvægis þess að stjórnendur beri hag sinna starfsmanna fyrir brjósti með því meðal annars að efla þá, hjálpa þeim að vaxa í starfi og gefa þeim sjálfstæði. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar eru opin og góð samskipti mikilvæg og byggja þarf upp traust með því að hlusta á starfsmenn og hvetja þá til þátttöku í ákvörðunum. Stjórnendur þurfa einnig að þekkja viðhorf sinna starfsmanna til fyrirtækisins og bregðast við því. Niðurstöðurnar eru í takti við eldri rannsóknir um þjónandi forystu í fyrirtækjum sem bent hafa til þess að með henni nái fyrirtæki árangri sem skilar sér í meiri starfsánægju, betri frammistöðu í starfi og meiri tryggð við fyrirtækið. Þá gefa niðurstöður vísbendingar um að stjórnendur fyrirmyndarfyrirtækja samkvæmt könnun VR tileinki sér stjórnunaraðferðir sem endurspegla hugmyndafræði þjónandi forystu. Flestar eldri rannsóknir tengt þessu viðfangsefni styðjast við megindlegar rannsóknaraðferðir og er ákveðin vöntun á eigindlegum rannsóknum. Þörf fyrir slíka rannsókn er ótvíræð og hefur hún gildi sérstaklega fyrir stjórnendur fyrirtækja. Rannsókn þessi nær einungis til sjö fyrirmyndarfyrirtækja og frekari rannsókna er þörf til að fá sjónarmið fleiri stjórnenda þannig fyrirtækja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurbjörg R. Hjálmarsdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26813
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26813

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurbjörg R. Hjálmarsdóttir 1970-. Velgengni leiðtoga snýst um vöxt og árangur annarra : áherslur stjórnenda "fyrirmyndarfyrirtækja" og hugmyndafræði þjónandi forystu. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26813