Back to results

Bifröst University

Virði lista verður ekki metið til fjár : sviðslistir og sinfónísk tónlist á Íslandi, mikilvægi, staða og þróun sex stærri félaga á sviði sviðslista og sinfónískrar tónlistar

Abstract

dc:description.abstract

Hér er tekin upp umræða um mikilvægi, stöðu og þróun, sex stærri félaga á sviði sviðslista og sinfónískrar tónlistar sem rekin eru með framlögum úr ríkissjóði og/eða með fjárstuðningi sveitarfélaga. Rannsókninni er ætlað að styðja við þær rannsóknir sem þegar liggja fyrir um hagræn áhrif og stærð skapandi greina, menningar og lista. Markmiðið rannsóknar var að rýna hlutverk ríkisins og stoðir menningar; lög og reglugerðir ásamt þeim mælikvörðum sem ríkið notar við úthlutun opinbers fjár til félaganna, stöðu þeirra og þróun frá efnahagshruni. Rannsóknarspurningunum, um hvort félögin séu mikilvæg menningarhagkerfi landsins; hvort þau skapi menningarlegra verðmæti fyrir samfélagið og hvort þau stuðli að auknum lífsgæðum var einnig svarað. Í ljósi fákeppni á markaði félaganna var að mestu stuðst við opinber gögn enda var það vilji viðmælenda rannsóknarinnar að ekki væri farið dýpra í fjárhagsáætlanir og ársreikninga félaganna. Nokkur þessara félaga birta ekki ársreikninga sína opinberlega og því reyndist rannsakanda erfitt að afla sér viðunandi upplýsinga sem til þurfti svo að samanburður á nýtingu fjármagns yrði sem nákvæmastur. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna ágætlega að stærsti hlutur tekna félaganna koma frá hinu opinbera. Einnig kom í ljós að stærri félögin njóta forgangs þegar kreppir að og skorið er niður í málaflokknum sömuleiðis að úthlutunarreglur eru ekki aðgengilegar. Það er mjög mikilvægt fyrir hið opinbera að hafa mælikvarða aðgengilega fyrir þegnanna og að úthlutunarreglur séu samræmdar og sanngjarnar. Það vakti furðu rannsakanda að ríkisvaldið hafi dregið úr opinberum fjárframlögum til félaganna eftir hrun í ljósi þess að eftirspurn og þörf fyrir hverskonar menningu stór jókst. Listamenn þjóðarinnar voru mörgum skjól, veittu hugarró á meðan aðrir fengu útrás fyrir réttláta reiði. Það væri tilefni til frekari rannsóknar að skoða tengsl og áhrif menningar á ferðaþjónustu á Íslandi. Það er von höfundar að þessi rannsókn sé upplýsandi og áhugaverð fyrir lesandann og lestur hennar gefi innsýn inn í stöðu þessara sex lykilfélaga í listum Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Linda Lea Bogadóttir 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26782
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26782

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Linda Lea Bogadóttir 1968-. Virði lista verður ekki metið til fjár : sviðslistir og sinfónísk tónlist á Íslandi, mikilvægi, staða og þróun sex stærri félaga á sviði sviðslista og sinfónískrar tónlistar. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26782