Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig tónlistarskólakennarar breyttu starfsháttum sínum samfara tækni- og þjóðfélagsbreytingum síðustu ára. Leitast er við að kanna með hvaða hætti kennarar hafa brugðist við nýjum tímum. Rannsóknin er eigindleg rannsókn og eru viðtöl við níu einstaklinga sem hafa það sammerkt að hafa nægjanlega starfsreynslu til að skynja muninn og starfa allir samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla. Þrír viðmælendur eru bæði rytmískir og klassískir kennarar, þrír eingöngu með klassíska kennslu og þrír með eingöngu rytmíska tónlist. Niðurstöður rannsóknarinnar eru að allir viðmælendur höfðu á einhvern hátt brugðist við breyttum tímum og breytt starfsháttum sínum þar af leiðandi. Breytingarnar fólust að mestu leyti í að svara kalli nemenda og laga kennsluna meira að áhugasviði nemendanna. Helstu breytingar á skólunum eru að vægi klassískrar tónlistar hefur minnkað og rytmískar tónlist aukist. Kennarar hafa brugðist við með blandaðri kennslu af klassískri og rytmískri tónlist auk þess sem námið er orðið meira einstaklingsmiðað en áður. Lykilorð: Uppeldi, tónlistarkennsla, tónlistarskólar, tækni, samkeppni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eiríkur G. Stephensen 1962-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26779
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26779