Back to results

Bifröst University

Konur í myndlist : rými, tími, hvatning og inntak listar

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hver staða kvenna í myndlist er og hvaða mótunarþættir eru sterkastir þegar kemur að því að taka þátt í myndlist. Leitast var við að skoða og greina þátt ytra umhverfis, félagslegan ramma, ytri aðstæður og samspil þessa þátta og áhrif á einstaklinga. Beitt er kenningum um kvenleika, femínisma, kenningum Bourdieu um veruhátt, vald, menningarauð og smekk. Rannsóknin er blönduð eigindleg og megindleg. Fléttað er reynslu og upplifun átta myndlistarkvenna, saman við tölulegar upplýsingar frá Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur og úthlutunarnefnd listamannalauna. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að konur og karlar standi ekki jafnfætis innan myndlistarsenunnar. Konur fá ekki sama rými á stóru söfnunum og þær selja ekki fyrir eins háar upphæðir. Þrátt fyrir að fleiri konur en karlar séu aðildarfélagar að SÍM og séu í meirihluta þeirra sem útskrifast úr Listaháskóla Íslands þá eru konur enn með veikari stöðu á markaði. Á hverju ári sækja fleiri konur en karlar um listamannalaun, en hlutfallslega fleiri karlar fá úthlutað. Upplifun kvenna í myndlist hefur verið og er jafnvel enn að þær séu skrautfjaðrir og fái stundum að vera með til að slá á gagnrýni frekar en að horft sé til þess að þær eigi fullt erindi til jafns við karlmenn. Þá mæta konur í myndlist sama viðhorfi og konur mæta svo víða í samfélaginu, aldur skiptir máli. Það skipti máli að vera ung og sæt til að eiga meiri möguleika. Lykilorð: Myndlist, áhugahvöt, hvatning, femínismi, staða (kvenna í myndlist)

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Valdimarsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26778
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26778

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Valdimarsdóttir 1967-. Konur í myndlist : rými, tími, hvatning og inntak listar. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26778