Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að skoða hver staða kvenna í myndlist er og hvaða mótunarþættir eru sterkastir þegar kemur að því að taka þátt í myndlist. Leitast var við að skoða og greina þátt ytra umhverfis, félagslegan ramma, ytri aðstæður og samspil þessa þátta og áhrif á einstaklinga. Beitt er kenningum um kvenleika, femínisma, kenningum Bourdieu um veruhátt, vald, menningarauð og smekk. Rannsóknin er blönduð eigindleg og megindleg. Fléttað er reynslu og upplifun átta myndlistarkvenna, saman við tölulegar upplýsingar frá Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur og úthlutunarnefnd listamannalauna. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að konur og karlar standi ekki jafnfætis innan myndlistarsenunnar. Konur fá ekki sama rými á stóru söfnunum og þær selja ekki fyrir eins háar upphæðir. Þrátt fyrir að fleiri konur en karlar séu aðildarfélagar að SÍM og séu í meirihluta þeirra sem útskrifast úr Listaháskóla Íslands þá eru konur enn með veikari stöðu á markaði. Á hverju ári sækja fleiri konur en karlar um listamannalaun, en hlutfallslega fleiri karlar fá úthlutað. Upplifun kvenna í myndlist hefur verið og er jafnvel enn að þær séu skrautfjaðrir og fái stundum að vera með til að slá á gagnrýni frekar en að horft sé til þess að þær eigi fullt erindi til jafns við karlmenn. Þá mæta konur í myndlist sama viðhorfi og konur mæta svo víða í samfélaginu, aldur skiptir máli. Það skipti máli að vera ung og sæt til að eiga meiri möguleika. Lykilorð: Myndlist, áhugahvöt, hvatning, femínismi, staða (kvenna í myndlist)
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Valdimarsdóttir 1967-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26778
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26778