Bifröst University
Barnabókin á tímum sífelldra truflana : leitin að skjóli, kjörlendi og meðbyr fyrir íslenskar barnabækur
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi er lokaverkefni í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Í verkefninu er umhverfi íslenskra barnabóka rannsakað, meðal annars opinber stuðningur, afkomuhorfur höfunda og dreifing barnabóka á bókasöfn. Þá er stefnumótun stjórnvalda sem tengist bókum fyrir börn greind, auk aðgerða hins opinbera og stefnumótun er varðar læsi grunnskólanema. Þá er skoðað með hvaða hætti bækur fyrir börn og aðrar bókmenntir hafa verið styrktar í gegnum tíðina og litið til þess hvað teljast góðir stjórnsýsluhættir í þeim efnum. Einnig er litið út fyrir landssteinana og þau stuðningsnet sem Norðmenn, Danir og Svíar hafa búið barnabókaútgáfu skoðuð og því velt upp hvort eitthvað af því sem þar er gert gæti gagnast hér á landi. Í lokin eru lagðar fram tillögur til úrbóta. Lykilorð: Barnabókmenntir, barnamenning, menningarstefna, opinber stuðningur, listamannalaun, bókasöfn, læsi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Margrét Tryggvadóttir 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26777
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26777