Bifröst University
Betur sjá augu en auga : eru samskipti mikilvæg í breytingum innan hjúkrunarheimila landsins?
Abstract
dc:description.abstractTilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun starfsmanna á breytingastjórnun innan hjúkrunarheimila á höfuðborgarsvæðinu. Þá er sérstaklega litið til þess hvort samskipti séu mikilvægur hluti í breytingarferli og hvernig starfsmenn upplifa samskipti í þeim breytingum sem þeir hafa tekið þátt í. Í þessari rannsókn er meðal annars horft til breytinga á stjórnun innan hjúkrunarheimila, á húsnæði, starfsmannahaldi eða breyttum starfsháttum. Sett var fram ein rannsóknarspurning: „Eru samskipti mikilvæg í breytingum innan hjúkrunarheimila landsins?“ Rætt var við sex starfsmenn hjúkrunarheimila sem gengið höfðu í gegnum breytingar á sínum vinnustöðum. Einstaklingsviðtöl voru tekin við þátttakendur sem síðan voru greind með túlkandi greiningu og sett niður í þemu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að starfsmenn upplifðu skort á samskiptum og upplýsingarflæði. Þeir hefðu viljað taka meiri þátt í breytingarferlinu og vera þannig betur undir breytingarnar búnir. Þá upplifðu viðmælendur vanlíðan og aukið álag í kjölfar breytinga, sem þeir röktu til slakrar undirbúningsvinnu við innleiðingu breytinganna af hálfu yfirmanna. Niðurstöður benda til að frekari þörf sé á rannsóknum á þessu sviði. Slíkar rannsóknir geta haft hagnýtt gildi fyrir yfirmenn hjúkrunarheimila sem stefna á breytingar
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Íris Dögg Guðjónsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25158
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25158