Bifröst University
„Þetta kemur bara ekkert upp í hendurnar á manni“ : Upplifun kvenna í forystu í fjármálageiranum á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractFjármálageirinn hefur alltaf þótt karllægur, en konur hafa þó verið að ryðja sér til rúms, þótt þær séu enn í minnihluta í forystunni. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða og skilja betur eiginleika og upplifun þeirra kvenna sem eru í forystu í fjármálageiranum á Íslandi, á hlutverki sínu og stöðu sem kvenleiðtogar þar sem karlmenn eru í meirihluta. Lítið hefur verið skrifað um upplifun kvenna í forystu í fjármálageiranum og því ákveðið að einblína á þennan tiltölulega fámenna hóp, með því að gera eigindlega rannsókn með fyrirbærafræðilegri aðferð. Tekin voru hálfopin djúpviðtöl við 10 konur í æðstu stjórnunarstöðum til að fá innsýn í reynsluheim þeirra, viðhorf og upplifun á áhrifaþáttum í starfumhverfi þeirra. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að starfsframinn hafði ekki komið upp í hendurnar á þeim, þær hafa þurft að sækjast eftir og grípa tækifærin. Þær virðast beita felandi stjórnun, með því að útdeila verkefnum og fela öðrum ábyrgð. Þær töluðu um að vera þær sjálfar og breyta sér ekki til að þóknast öðrum. Tíminn er stærsta fórnin sem þarf til þess að komast í stöður sem þessar. Viðhald og uppbygging á tengslaneti þykir líka mikilvæg og ein helsta hindrun kvenna á Íslandi ef þær vilja komast til áhrifa. Kröfur eru miklar og oft um kynbundinn mun á þeim að ræða. Þær hindranir og áskoranir sem þær standa frammi fyrir eru ýmsar, en færri en þær voru fyrir fimm árum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dagný Jónsdóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25134
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25134