Back to results

Bifröst University

Áhrifaþættir starfsánægju : samanburður á útibúum Arion banka

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar rannsóknar var starfsánægja og áhrifaþættir hennar. Fjölmargir þættir geta haft áhrif á viðhorf fólks til starfsánægju og eru þeir einnig mismunandi milli einstaklinga. Höfundi fannst því áhugavert að kanna hverjir þessir þættir eru hjá starfsfólki í útibúum Arion banka ásamt því að kanna hvort stærð vinnustaðar hafi áhrif á starfsánægju. Rannsóknarspurningin var því eftirfarandi: „Hvaða þættir hafa áhrif á starfsánægju og skiptir stærð vinnustaðar máli þegar kemur að starfsánægju?” Stuðst var við samleitandi snið þar sem bæði eigindlegra og megindlegra gagna var aflað, þau greind hvort í sínu lagi en síðan tengd saman þar sem við átti. Megindlegi hluti rannsóknarinnar var í formi spurningakönnunar sem send var á starfsfólk tveggja útibúa bankans. Eigindlegi hluti rannsóknarinnar fór þannig fram að tekin voru hálf opin viðtöl við útibússtjóra útibúanna tveggja og starfsmannastjóra fyrirtæksins. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að starfsmenn virtust frekar ánægðir í starfi sínu í heildina litið. Stærð vinnustaðar virtist ekki skipta máli varðandi heildaránægju starfsfólks en tveir af þremur einstökum þáttum komu þó betur út á minni vinnustaðnum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Auður Stefánsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23768
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23768

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Auður Stefánsdóttir 1984-. Áhrifaþættir starfsánægju : samanburður á útibúum Arion banka. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23768