Back to results

Bifröst University

Hvaða kröfur skal gera til fjármálafyrirtækja varðandi upplýsingaskyldu og ráðgjöf til viðskiptavina og hversu rík er sérfræðiábyrgð þegar upplýsingum og ráðgjöf er ábótavant

Abstract

dc:description.abstract

Í viðfangsefni þessu er fjallað um hvaða kröfur skuli gera til fjármálafyrirtækja varðandi upplýsingaskyldu og ráðgjöf til viðskiptavina og hversu rík er sérfræðiábyrgð þegar upplýsingum og ráðgjöf er ábótavant. Þá er fjallað almennt um fjármálamarkaðinn og aðila á þeim markaði. Einnig er fjallað um lög og reglur sem um þau gilda. Fjallað var sérstaklega um regluna um að þekkja viðskiptavininn og regluna um upplýsingaskyldu fjármálfyrirtækja. Fjallað er um sérfræðiábyrgð og hvað í henni felst og að auki hvernig sönnunarbyrði er háttað í málum sem varða ófullnægjandi ráðgjöf fjármálafyrirtækja. Einnig er fjallað um dóma málinu til stuðnings. En þess ber að geta að höfundur einskorðaði sig við dóma eftir fall íslensku krónunnar árið 2008. Einnig fjallar höfundur um ábyrgð fjármálfyrirtækja í Danmörku þegar þau vanrækja upplýsingaskyldu sína sem og lítil umfjöllun um hvernig framkvæmd er í Noregi og Svíþjóð. Einnig er gerður smá samanburður á framkvæmd á Norðurlöndunum, þó einna helst við Danmörk og að lokum kemur niðurstaða. Þess ber að geta að almenna skaðabótareglan kveður á um að tjónþoli þurfi að sanna tjón sitt sjálfur og að tjónið megi rekja til háttsemi tjónvalds sem er bæði valdið með saknæmum og ólögmætum hætti. En þegar við erum á sviði sérfræðibyrgðar að þá er reglunni beitt með strangari hætti, þ.e. afbrigðilegri beitingu sönnunarreglna. Kemur því sú spurning hvaða bótaábyrgð liggur til grundvallar í málum er varða ófullnægjandi ráðgjöf fjármálafyrirtækja. Mátti ýmist sjá á dómaframkvæmd að meginreglunni var beitt eða meginreglunni beitt með strangari hætti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Björgvinsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23738
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23738

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Björgvinsdóttir 1984-. Hvaða kröfur skal gera til fjármálafyrirtækja varðandi upplýsingaskyldu og ráðgjöf til viðskiptavina og hversu rík er sérfræðiábyrgð þegar upplýsingum og ráðgjöf er ábótavant. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23738