Back to results

Bifröst University

Íslenskir kvenstjórnendur : vegferð og viðhorf

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta fjallar um farveg íslenskra kvenstjórnenda og viðhorf þeirra til ýmissa málefna, svo sem kynjakvóta og tengslaneta. Staða kvenna á Íslandi hefur í raun aldrei verið betri, hér finnst eitt mesta jafnrétti í heimi, konur eru í meirihluta þeirra sem sækja háskólanám og hlutfall þeirra á atvinnumarkaði er hærra en annars staðar í heiminum. Í raun má segja að staða kvenna sé í sögulegu hámarki. Þrátt fyrir það hallar verulega á hlut kvenna í stjórnunarstöðum og í stjórnum fyrirtækja þrátt fyrir að þar hafi verið sett lög um kynjakvóta. Markmið verkefnisins er að sjá hvað þær konur sem hafa náð árangri eiga sameiginlegt og bera saman við aðrar konur á Norðurlöndunum. Aðilar innan Háskólans á Bifröst taka nú þátt í samstarfsverkefni þar sem markmiðið er að finna það sem einkennir stjórnarhætti Norðurlandaþjóðanna svo hægt sé að þróa leiðtogalíkan sem má nota í stjórnunartengdri kennslu við háskólann. Niðurstöður verkefnisins sýna að konurnar eiga margt sameiginlegt, eru vel upplýstar um stöðu kynjanna og taka stefnumiðaðar ákvarðanir á vegferð sinni til árangurs. Þær eru markmiðasæknar, ákveðnar og vilja öðlast jafnrétti kynjanna í stjórnunarstöðum. Engin ein leið er réttari eða betri en önnur en ljóst að konur hugsa stefnumiðað um barneignir og nám. Erlendar rannsóknir sýna að karlmenn hefja feril sinn ofar en konur og komast því hraðar upp metorðastigann á kostnað kvenna. Því er mikilvægt í framtíðinni að huga að uppbyggingu frama beggja kynja á námsárum og fyrstu árum á atvinnumarkaði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lísbet Hannesdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23734
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23734

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lísbet Hannesdóttir 1986-. Íslenskir kvenstjórnendur : vegferð og viðhorf. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23734