Back to results

Bifröst University

Vinnustaðamenning Krónunnar

Abstract

dc:description.abstract

Vinnustaðamenning er hluti af öllum vinnustöðum og er bæði sýnileg eða ósýnileg. Meginþættir vinnustaðamenningar eru trú, gildi, tákn, hegðun og viðhorf. Árangur fyrirtækis og frammistaða getur haft áhrif á hversu sterk eða veik vinnustaðamenning fyrirtækisins er. Markmið rannsóknarinnar var að greina vinnustaðamenningu Krónunnar og kanna helstu styrkleika og veikleika hennar. Íslensk þýðing spurningalista Denison líkansins (DOCS) var lagður fyrir stjórnendur og millistjórnendur Krónunnar í september 2015 á rafrænan hátt. Spurningalistanum svöruðu 20 einstaklingar og var honum skipt í fjórar yfirvíddir menningar. Yfirvíddirnar mældu: þátttöku og aðild, samkvæmni og stöðugleika, aðlögunarhæfni og hlutverk og stefnu. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á tengsl milli árangurs fyrirtækja og vinnustaðamenningar og á það einnig við um starfsmannaveltu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að vinnustaðamenning Krónunnar telst frekar veik, þar sem öll menningareinkennin voru undir viðmiðunareinkunn nema ein vídd. Styrkleikar menningar Krónunnar liggja helst í skýrri stefnu og hlutverki, sem fyrirtækið hefur mótað. Starfsfólkið virðist vera meðvitað um tilgang stefnunnar, starfshlutverkin eru skýr og framtíðarsýn fyrirtækisins. Veikleikar menningarinnar liggja í samræmi á gildum og samþættingu. Krónubúðirnar virðast skorta samræmi og upplýsingaflæði milli deilda og þarf að bæta. Hæfni til samvinnu virðist einnig skorta og er mikilvægt að styrkja hana því samvinna eykur skilning starfsfólks og virðingu fyrir störfum annarra. Skortur er á þróun mannauðs og það er víddin sem kom lægst út við mælingar á vinnustaðamenningu Krónunnar. Úrbóta er einnig þörf þegar kemur að því að starfsmaður hafi tækifæri til að þróast í starfi. Veikleiki mældist einnig varðandi breytingar, en þær hafa bæði áhrif á innra og ytra umhverfi. Niðurstöður sýndu að vinnustaðamenning Krónunnar var frekar veik miðað við aðrar rannsóknir á skipulagsheildum. Ástæður fyrir að Krónan skoraði lægra en sumar skipulagsheildir má rekja til ýmissa þátta, til dæmis sameiningu fyrirtækja, breytinga á skipulagsheildum, forstjóraskipta eða vankunnáttu. Lykilorð: Vinnustaðamenning, Denison spurningalistinn, mælitæki vinnustaðamenningar, starfsmannavelta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pálína Valdimarsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23719
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23719

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pálína Valdimarsdóttir 1987-. Vinnustaðamenning Krónunnar. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23719