Bifröst University
Tengsl stjórnunarhátta við líðan í starfi : rannsókn á þjónandi forystu í Arion banka
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessa verkefnis er að fjalla um rannsókn sem lögð var fyrir starfsfólk Arion banka í maí 2014. Markmið rannsóknarinnar var að kanna vægi þjónandi forystu meðal yfirmanna Arion banka ásamt því kanna hversu há starfsánægja mældist meðal þátttakenda og hvort þeir sýndu einkenni kulnunar í starfi. Þá var einnig kannað hvort tengsl væru annars vegar á milli þjónandi forystu og starfsánægju og hins vegar milli þjónandi forystu og einkenna um kulnun í starfi. Spurningalisti var lagður fyrir alla starfsmenn Arion banka og var honum skipt upp í fjóra þætti: Í fyrsta lagi SLS mælitækið (e. Servant leadership survey), sem mælir viðhorf starfsmanna til þjónandi forystu hjá næsta yfirmanni, í öðru lagi starfskulnunarlisti Maslachs (e. Maslach burnout inventory), sem mælir einkenni um kulnun í starfi, í þriðja lagi starfsánægjuspurning og að lokum bakgrunnsspurningar. Mælitækinu um þjónandi forystu er skipt í átta þætti: efling, auðmýkt, falsleysi, hugrekki, forgangsröðun í þágu annarra, ábyrgðarskylda, fyrirgefning og ráðsmennska; niðurstöður rannsóknarinnar voru greindar samkvæmt þeim. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að vægi þjónandi forystu er hátt meðal yfirmanna Arion banka og það hæsta sem mælst hefur í sambærilegum rannsóknum hérlendis með sama mælitæki. Sá þáttur sem mældist hæstur var efling og var lægsti þáttur rannsóknarinnar hugrekki. Starfsánægja var mikil meðal þátttakenda og voru eingöngu 10% þeirra óánægðir eða mjög óánægðir í starfi sínu hjá bankanum. Þá mældust í heildina lítil einkenni um kulnun meðal þátttakenda rannsóknarinnar en einungis 3% þeirra mældust með mikil einkenni um kulnun í starfi. Marktæk jákvæð tengsl komu í ljós milli þátta þjónandi forystu og starfsánægju og einnig marktæk neikvæð tengsl milli þátta þjónandi forystu og einkenna um kulnun. Gefa niðurstöður rannsóknarinnar til kynna að þjónandi forysta leiði til aukinnar starfsánægju og einnig að skortur á þjónandi forystu leiði til aukinna einkenna um kulnun í starfi. Lykilhugtök: þjónandi forysta, leiðtogi, stjórnun, forysta, starfsánægja, kulnun, bankastarfsmenn, Arion banki
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Thelma Kristín Kvaran 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/22062
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/22062