Abstract
dc:description.abstractÞessi ritgerð er á að svara rannsóknarspurningunni: Hver er ávinningur og eða ókostir þess fyrir bílaleigur að taka upp gæða- og umhverfisvottanir? Voru skoðaðar helstu kenningar í gæðastjórnun og helstu umhverfis- og gæðavottanir sem fyrirtæki nota helst á Íslandi í dag. Það virðist vera að aðeins ein bílaleiga á Íslandi sé með vottun af einhverju tagi á sínum rekstri en ekki náðist að ræða við þá aðila um þeirra skoðanir. Hins vegar var rætt var við stjórnendur í tveimur fyrirtækjum sem gengið höfðu í gegnum ISO vottun á öðrum vettvangi atvinnulífsins, þó reyndar annað þeirra starfi í ferðaþjónustu. Til þess að öðlast innsýn í upplifun stjórnenda á þeim kostum og göllum sem fylgja slíku ferli. Helstu niðurstöður má túlka á þann veg að ef horft er til lengri tíma má með innleiðingu gæða- og umhverfiskerfa stuðla að betra fyrirtæki fyrir alla hagsmunaraðila þess; viðskiptavini, starfsfólk, nánasta samfélag sem og eigendur. Ekki fékkst þó skýr niðurstaða í það hvort að sá ávinningur sem næst við innleiðingu á gæðakerfi sé vegna gæðakerfisins sjálfs, eða eingöngu vegna aukinnar vakningar um gæðamál almennt. Þó má ætla að innleiðing gæðakerfis sé góð leið til þess að festa gæðastjórnun í sessi og til þess að öðlast betri yfirsýn á verkefnið. Eftir samanburð á mismunandi gæða- og umhverfiskerfum og vottunum er það mat höfundar að ISO 9001 og ISO 14001 vottanir séu það sem muni skila fyrirtækjum bestum ávinningi. Kostnaður getur verið mikill og veltur mikið til á því hversu vel fyrirtæki eru undirbúin og hversu skipulega er farið í verkefnið, erfitt er að meta nákvæmlega kostnað fyrirfram og í framhaldi jákvæðar fjárhagslegar afleiðingar vottunar en það væri hugsanlega tilefni til annarrar rannsóknar sem væri athyglisvert að skoða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anton Smári Rúnarsson 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17490
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17490