Agricultural University of Iceland
Fjaran og lífríkið sem kennslusvæði: Vistgerðaflokkun fjara í Vopnafirði sem faglegur grunnur fyrir kennslu og námsefni
Abstract
dc:description.abstractHér er sagt frá vistgerðaflokkun fjara í Vopnafirði, frá Hofsárós að Lónaós – að Nýps- og Skógalóni meðtöldum. Fjörurnar voru rannsakaðar með það í huga að bæta við þekkingu á náttúru Vopnafjarðar, skoða og greina hvers konar fjöruvistgerðir væri þar að finna og hvert gildi þeirra væri. Tilgangurinn var jafnframt að byggja upp faglegan grunn fyrir kennslu og námsefni og skoða hvort og hvernig slík vistgerðaflokkun nýttist til að bæta nám grunnskólanema og vekja áhuga þeirra á vísindum og rannsóknarvinnu. Fjörurnar voru skoðaðar, kortlagðar og flokkaðar samkvæmt aðferðum NATURA Íslands-verkefnisins hjá NÍ, þ.e. eftir fjörubeði, brimasemi og einkennislífverum. Í Vopnafirði eru fjöruvistgerðir nokkuð fjölbreyttar og margar af þeim fjöruvistgerðum sem finnast á landinu eru skráðar í Vopnafirði. Á þessu svæði fundust fjöruvistgerðir sem hafa hátt verndargildi og aðrar sem eru á lista Bernarsamningsins frá árinu 2014 yfir vistgerðir sem þarfnast verndar. Einnig fundust fuglar sem eru í bráðri hættu og yfirvofandi hættu samkvæmt Válista NÍ. Þær fjörur sem greindar voru hafa marga kosti til kennslu og námsefnisgerðar, m.a. með tilliti til grunnþátta menntunar og grenndar- og útikennslu. Fjörurnar hafa mikið fræðslugildi og álitlegt er að nýta svæðið til gerðar námsefnis í náttúrufræði og umhverfisfræði auk samþættingar við aðrar námsgreinar, s.s. samfélagsfræði – landafræði og sögu, stærðfræði og íslensku svo eitthvað sé nefnt. Upplagt er að fjalla um sögu staðarins, atvinnuþróun, búsetuþróun, örnefni, menningu og list eða hvað eina annað sem einkennir samfélagið. Vistgerðaflokkun sem þessi gefur kennaranum möguleika á að leggja fyrir raunveruleg verkefni sem gefa nemendum tækifæri til að nálgast umhverfi sitt á áþreifanlegan hátt og vinna með vísindalegum aðferðum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Jónsdóttir 1956-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28244
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28244