Back to search

University of Iceland

Myndlistalottó : spil og leikir í kennslu

Abstract

dc:description.abstract

Lokaverkefni mitt var að útbúa og útfæra hið klassíska lottóspil með það markmið að það fjalli um íslenska myndlistarsögu fyrir yngri börn grunnskólans. Lottóspilið er samstæðuspil sem byggist upp á sex lottóspjöldum með sex myndum af málverkum eftir sex myndlistamenn. Spilinu fylgja þrjátíu og sex minni myndir sem stjórnandi dregur og leikmenn para við spjöld sín. Til grundvallar var stuðst við Aðalnámskrá grunnskóla, listgreinar og áfangamarkmið fyrir 1.-4. bekk. Tildrög þess að ég valdi að útbúa námsspil er hve lítið er til af tilbúnu námsefni fyrir myndmenntakennslu í grunnskóla. Einnig vildi ég útbúa efni sem allir kennarar gætu notað við kennslu og fræðslu um íslenska myndlist. Í leik vaknar áhugi barna á viðfangsefninu, þau upplifa sig frekar í leik en námi og með námsspili má segja að komið sé til móts við báða þá þætti, fræðsluna og leikþörf barnanna. Í þessu spili tengja börn saman málverk og listamenn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Sæmundsdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9729
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9729

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Sæmundsdóttir. Myndlistalottó : spil og leikir í kennslu. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9729