Back to search

University of Iceland

Hvað felst í fjölskyldustefnu? Upplifun og reynsla starfsfólks

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið með þessari rannsókn var að skoða hvað felst í fjölskyldustefnu fyrirtækja út frá upplifun og reynslu starfsfólks. Einnig að skoða þann sveigjanleika sem starfsfólk hafði yfir að ráða í starfi sínu. Reynt var að skoða upplifun starfsfólksins í ljósi fyrirtækjamenningar og starfsánægju og tengslin á milli þessara þátta. Leitast var við að öðlast djúpa innsýn í raunverulega reynslu viðmælenda af fjölskylduvænu vinnuumhverfi og á hvaða hátt þeir upplifðu vinnustað sinn koma til móts við sambandið á milli vinnu og fjölskyldu. Rannsóknaraðferðin sem hér var notuð var eigindleg aðferð. Tekin voru opin viðtöl við átta útivinnandi mæður og fór rannsóknin fram í þremur fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að viðmælendur upplifðu fjölskyldustefnu vinnustaða sinna jákvætt og töldu sig hafa þann sveigjanleika sem þeir þurftu á að halda til að mæta kröfum fjölskylduábyrgðar. Einnig töldu viðmælendur sig fá mikinn skilning af hálfu yfirmanna sem endurspeglaði mikilvægt hlutverk menningu vinnustaða þeirra. Viðmælendur töldu sig almennt vera ánægða í starfi og að sú ánægja væri tilkomin meðal annars vegna þess hversu fjölskylduvæn fyrirtækin voru sem þeir störfuðu hjá.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eva Ýr Gunnlaugsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7981
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7981

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Ýr Gunnlaugsdóttir 1979-. Hvað felst í fjölskyldustefnu? Upplifun og reynsla starfsfólks. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7981