University of Iceland
Jón bóndi og alheimurinn. Ritgjörð tilheyrandi spendýrafræði eftir Jón Bjarnason
Abstract
dc:description.abstractUm miðja 19. öld var hin tvískipta menningararfleið, rétttrúnaðarkristni og náttúrudulhyggja rótgróin með íslensku þjóðinni. Úr þessum jarðvegi sprettur bóndi norður í Vatnsdal sem í anda upplýsingarinnar ræðst í það þrekvirki að skrifa fjölbindaverk ætlað uppfræðslu alþýðu. Meginviðfangsefni þessa verkefnis er rannsókn á og sýnishorn úr fjölbindaverkinu ÍBR 67-73 4to, um náttúrufræði, landafræði og ýmsan annan hagnýtan fróðleik, sem bóndinn Jón Bjarnason frá Þórormstungu í Vatnsdal vann á árunum 1845-1852. Formála og kaflanum Mammalia úr fyrsta bindi verksins (ÍBR 67 4to) eru gerð skil. Í formálanum gerir Jón grein fyrir uppbyggingu verksins og heimildum og er hann mikilvægur lykill að bóklegri iðju Jóns og um leið að handritamenningu alþýðu á 19. öld. Jón kemur víða fram með eigin skoðanir og athugasemdir. Þetta gefur færi á því að ráða í heimsmynd manns eins og Jóns, bónda á Íslandi um miðja 19. öld og varpa ljósi á það hvernig óskólagenginn alþýðumaður gat nýtt sér tiltæka þekkingu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Árni H. Kristjánsson 1961-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6196
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6196