Back to search

University of Iceland

Áhrif hjúkrunaríhlutana á lífsgæði fullorðinna einstaklinga með langvinna lungnateppu. Fræðileg samantekt

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Langvinn lungnateppa (LLT) er alvarlegur öndunarfærasjúkdómur sem hrjáir yfir 250 milljón einstaklinga og er þriðja algengasta dánarorsök á heimsvísu. Sjúkdómurinn hefur veruleg áhrif á lífsgæði og daglega virkni einstaklinga. Mikil einkennabyrði fylgir honum sem getur haft umtalsverð áhrif á andlega heilsu. Hjúkrunarfræðingar gegna mikilvægu hlutverki í umönnun einstaklinga með LLT og geta bætt lífsgæði þeirra með markvissum hjúkrunaríhlutunum. Þeir geta meðal annars eflt sjálfsumönnun og meðferðarheldni, auk þess að veita fræðslu og sinna endurhæfingu. Tilgangur: Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að greina og draga saman fræðilega þekkingu um hjúkrunaríhlutanir sem hafa áhrif á lífsgæði fullorðinna einstaklinga með LLT. Með því að varpa ljósi á árangursríkar hjúkrunaríhlutanir má auka þekkingu sem nýtist í klínísku starfi og stuðlar að bættri þjónustu við einstaklinga með LLT. Aðferð: Samþætt fræðileg samantekt byggð á 15 rannsóknum um áhrif hjúkrunaríhlutana á LLT. Notast var við gagnagrunnana CINAHL, ProQuest, PubMed og Web of Science til að finna ritrýndar rannsóknir með kerfisbundnum hætti. Leitarorð, ásamt inntöku- og útilokunarskilyrðum voru skilgreind áður en heimildaleit hófst. PICOTS-viðmið voru notuð til að setja upp leitarorð og PRISMA flæðirit til að lýsa ferli heimildaleitar. Einungis var leitað að rannsóknum sem fjölluðu um fullorðna einstaklinga með LLT á árunum 2021-2026, þar sem lífsgæði voru mæld sem útkomubreyta og áhrif hjúkrunaríhlutana metin. Að lokum voru 15 af 68 rannsóknum sem uppfylltu þessi skilyrði. Niðurstöður: Flestar rannsóknir sýndu fram á að hjúkrunaríhlutanir hefðu marktæk jákvæð áhrif á lífsgæði einstaklinga með LLT. Meðal þeirra eru hjúkrunarstýrð endurhæfing, valdeflandi og einstaklingsmiðaðar hjúkrunaríhlutanir með virkri eftirfylgd, stuðningur og tæknilausnir, auk sálfélagslegra og stafrænna hjúkrunaríhlutana. Hjúkrunaríhlutanir hafa einnig sýnt jákvæð áhrif á daglega virkni, sjálfsumönnun, einkenni sjúkdómsins og andlega líðan einstaklinga með LLT. Jafnframt hafa rannsóknir sýnt að fyrrnefndar hjúkrunaríhlutanir dragi úr sjúkrahúsinnlögnum og þörf á bráðaheilbrigðisþjónustu. Ályktanir: Draga má þá ályktun að hjúkrunaríhlutanir séu lykilatriði í meðferð, endurhæfingu og almennri hjúkrun einstaklinga með LLT. Sjúkdómurinn er alþjóðlegt heilbrigðisvandamál sem krefst gagnreyndra meðferða. Niðurstöðurnar hafa verulegt klínískt gildi fyrir hjúkrunarfræðinga, þar sem þær geta nýst til að bæta lífsgæði einstaklinga með LLT. Lykilorð: Langvinn lungnateppa, lífsgæði, hjúkrunaríhlutanir, lungnaendurhæfing, fullorðinn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Rebekka Rós Ívarsdóttir 2001-
  • Brynja Björk Guðmundsdóttir 2002-
  • Halla María Gústafsdóttir 2001-
  • Sara Rut M. Vilbergsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53124
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53124

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rebekka Rós Ívarsdóttir 2001-; Brynja Björk Guðmundsdóttir 2002-; Halla María Gústafsdóttir 2001-; Sara Rut M. Vilbergsdóttir 2001-. Áhrif hjúkrunaríhlutana á lífsgæði fullorðinna einstaklinga með langvinna lungnateppu. Fræðileg samantekt. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53124