University of Iceland
Lærum á lífið: Rauntengt, samþætt kennsluefni í samfélagsgreinum
Abstract
dc:description.abstractMarkmið verkefnisins var að hanna kennsluefni fyrir samfélagsgreinar í formi verkefnabanka sem tengir nám við raunverulegar aðstæður í daglegu lífi nemenda. Þróaður var verkefnabanki sem hægt er að nýta sem stök verkefni eða sem heildstætt ferli þar sem nemendur fylgja persónu sem tekst á við raunverulegar áskoranir. Með efninu fylgja námsmatsleiðbeiningar í formi leiðsagnarmats sem styður við námsferli nemenda með reglulegri endurgjöf. Kennsluefnið byggir á rauntengdu námi og leiðsagnarmati og er bæði samþætt og hæfnimiðað. Verkefnabankinn inniheldur fjölbreytt verkefni sem taka meðal annars til fjármála, atvinnulífs, sjálfsmyndar og lýðræðis. Verkefnin eru unnin með hliðsjón af grunnþáttum menntunar, lykilhæfni og hæfniviðmiðum úr samfélagsgreinum, íslensku, stærðfræði og upplýsinga- og tæknimennt samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla. Kennsluaðferðirnar eru nemendamiðaðar og fela meðal annars í sér lausnaleitarnám, hópvinnu og skapandi verkefni. Fræðilegur grunnur verkefnisins byggir á rannsóknum á rauntengdu námi, fjármálalæsi, lífsleikni, upplýsingalæsi, lýðræði í skólastarfi, samþættingu námsgreina og leiðsagnarmati. Verkefnabankinn er ætlaður sem verkfæri fyrir kennara til að efla rauntengt, samþætt og hæfnimiðað nám með leiðsagnarmati og styðja nemendur í að takast á við raunveruleg viðfangsefni og verða virkir þátttakendur í samfélaginu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Íris Camilla Andrésdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53070
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53070