{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/53070"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/53070","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Lærum á lífið: Rauntengt, samþætt kennsluefni í samfélagsgreinum","abstract":"Markmið verkefnisins var að hanna kennsluefni fyrir samfélagsgreinar í formi verkefnabanka sem tengir nám við raunverulegar aðstæður í daglegu lífi nemenda. Þróaður var verkefnabanki sem hægt er að nýta sem stök verkefni eða sem heildstætt ferli þar sem nemendur fylgja persónu sem tekst á við raunverulegar áskoranir. Með efninu fylgja námsmatsleiðbeiningar í formi leiðsagnarmats sem styður við námsferli nemenda með reglulegri endurgjöf. Kennsluefnið byggir á rauntengdu námi og leiðsagnarmati og er bæði samþætt og hæfnimiðað. Verkefnabankinn inniheldur fjölbreytt verkefni sem taka meðal annars til fjármála, atvinnulífs, sjálfsmyndar og lýðræðis. Verkefnin eru unnin með hliðsjón af grunnþáttum menntunar, lykilhæfni og hæfniviðmiðum úr samfélagsgreinum, íslensku, stærðfræði og upplýsinga- og tæknimennt samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla. Kennsluaðferðirnar eru nemendamiðaðar og fela meðal annars í sér lausnaleitarnám, hópvinnu og skapandi verkefni. Fræðilegur grunnur verkefnisins byggir á rannsóknum á rauntengdu námi, fjármálalæsi, lífsleikni, upplýsingalæsi, lýðræði í skólastarfi, samþættingu námsgreina og leiðsagnarmati. Verkefnabankinn er ætlaður sem verkfæri fyrir kennara til að efla rauntengt, samþætt og hæfnimiðað nám með leiðsagnarmati og styðja nemendur í að takast á við raunveruleg viðfangsefni og verða virkir þátttakendur í samfélaginu.","abstract_html":"Markmið verkefnisins var að hanna kennsluefni fyrir samfélagsgreinar í formi verkefnabanka sem tengir nám við raunverulegar aðstæður í daglegu lífi nemenda. Þróaður var verkefnabanki sem hægt er að nýta sem stök verkefni eða sem heildstætt ferli þar sem nemendur fylgja persónu sem tekst á við raunverulegar áskoranir. Með efninu fylgja námsmatsleiðbeiningar í formi leiðsagnarmats sem styður við námsferli nemenda með reglulegri endurgjöf. Kennsluefnið byggir á rauntengdu námi og leiðsagnarmati og er bæði samþætt og hæfnimiðað. Verkefnabankinn inniheldur fjölbreytt verkefni sem taka meðal annars til fjármála, atvinnulífs, sjálfsmyndar og lýðræðis. Verkefnin eru unnin með hliðsjón af grunnþáttum menntunar, lykilhæfni og hæfniviðmiðum úr samfélagsgreinum, íslensku, stærðfræði og upplýsinga- og tæknimennt samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla. Kennsluaðferðirnar eru nemendamiðaðar og fela meðal annars í sér lausnaleitarnám, hópvinnu og skapandi verkefni. Fræðilegur grunnur verkefnisins byggir á rannsóknum á rauntengdu námi, fjármálalæsi, lífsleikni, upplýsingalæsi, lýðræði í skólastarfi, samþættingu námsgreina og leiðsagnarmati. Verkefnabankinn er ætlaður sem verkfæri fyrir kennara til að efla rauntengt, samþætt og hæfnimiðað nám með leiðsagnarmati og styðja nemendur í að takast á við raunveruleg viðfangsefni og verða virkir þátttakendur í samfélaginu.","abstract_has_math":false,"creators":["Íris Camilla Andrésdóttir 1991-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2026,"date_issued":"2026-05-15T08:50:22Z","date_published":"2026-05-15T08:50:22Z","updated_at":"2026-07-27T21:43:28Z","subjects":["Kennsla samfélagsgreina","Verkefnabankar","Námsmat"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"https://hdl.handle.net/1946/53070","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Íris Camilla Andrésdóttir 1991-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2026-05-15T08:50:18Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2026-05-15T08:50:18Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2026-05-15T08:50:22Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Kennsla samfélagsgreina","Verkefnabankar","Námsmat"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["https://hdl.handle.net/1946/53070"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Markmið verkefnisins var að hanna kennsluefni fyrir samfélagsgreinar í formi verkefnabanka sem tengir nám við raunverulegar aðstæður í daglegu lífi nemenda. Þróaður var verkefnabanki sem hægt er að nýta sem stök verkefni eða sem heildstætt ferli þar sem nemendur fylgja persónu sem tekst á við raunverulegar áskoranir. Með efninu fylgja námsmatsleiðbeiningar í formi leiðsagnarmats sem styður við námsferli nemenda með reglulegri endurgjöf. Kennsluefnið byggir á rauntengdu námi og leiðsagnarmati og er bæði samþætt og hæfnimiðað. Verkefnabankinn inniheldur fjölbreytt verkefni sem taka meðal annars til fjármála, atvinnulífs, sjálfsmyndar og lýðræðis. Verkefnin eru unnin með hliðsjón af grunnþáttum menntunar, lykilhæfni og hæfniviðmiðum úr samfélagsgreinum, íslensku, stærðfræði og upplýsinga- og tæknimennt samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla. Kennsluaðferðirnar eru nemendamiðaðar og fela meðal annars í sér lausnaleitarnám, hópvinnu og skapandi verkefni. Fræðilegur grunnur verkefnisins byggir á rannsóknum á rauntengdu námi, fjármálalæsi, lífsleikni, upplýsingalæsi, lýðræði í skólastarfi, samþættingu námsgreina og leiðsagnarmati. Verkefnabankinn er ætlaður sem verkfæri fyrir kennara til að efla rauntengt, samþætt og hæfnimiðað nám með leiðsagnarmati og styðja nemendur í að takast á við raunveruleg viðfangsefni og verða virkir þátttakendur í samfélaginu."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Lærum á lífið: Rauntengt, samþætt kennsluefni í samfélagsgreinum"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Íris Camilla Andrésdóttir 1991-"],"dc:date.accessioned":["2026-05-15T08:50:18Z"],"dc:date.available":["2026-05-15T08:50:18Z"],"dc:date.issued":["2026-05-15T08:50:22Z"],"dc:description.abstract":["Markmið verkefnisins var að hanna kennsluefni fyrir samfélagsgreinar í formi verkefnabanka sem tengir nám við raunverulegar aðstæður í daglegu lífi nemenda. Þróaður var verkefnabanki sem hægt er að nýta sem stök verkefni eða sem heildstætt ferli þar sem nemendur fylgja persónu sem tekst á við raunverulegar áskoranir. Með efninu fylgja námsmatsleiðbeiningar í formi leiðsagnarmats sem styður við námsferli nemenda með reglulegri endurgjöf. Kennsluefnið byggir á rauntengdu námi og leiðsagnarmati og er bæði samþætt og hæfnimiðað. Verkefnabankinn inniheldur fjölbreytt verkefni sem taka meðal annars til fjármála, atvinnulífs, sjálfsmyndar og lýðræðis. Verkefnin eru unnin með hliðsjón af grunnþáttum menntunar, lykilhæfni og hæfniviðmiðum úr samfélagsgreinum, íslensku, stærðfræði og upplýsinga- og tæknimennt samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla. Kennsluaðferðirnar eru nemendamiðaðar og fela meðal annars í sér lausnaleitarnám, hópvinnu og skapandi verkefni. Fræðilegur grunnur verkefnisins byggir á rannsóknum á rauntengdu námi, fjármálalæsi, lífsleikni, upplýsingalæsi, lýðræði í skólastarfi, samþættingu námsgreina og leiðsagnarmati. Verkefnabankinn er ætlaður sem verkfæri fyrir kennara til að efla rauntengt, samþætt og hæfnimiðað nám með leiðsagnarmati og styðja nemendur í að takast á við raunveruleg viðfangsefni og verða virkir þátttakendur í samfélaginu."],"dc:identifier.uri":["https://hdl.handle.net/1946/53070"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Kennsla samfélagsgreina","Verkefnabankar","Námsmat"],"dc:title":["Lærum á lífið: Rauntengt, samþætt kennsluefni í samfélagsgreinum"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:43:28Z"}