Back to search

University of Iceland

Þjónandi leiðsögn í starfi með börnum: Greinargerð með handbók

Abstract

dc:description.abstract

Þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching) er hugmyndafræði sem leggur áherslu á tengsl, tilfinningalegt öryggi og virðingu í samskiptum við einstaklinga sem þurfa aukinn stuðning. Á síðustu árum hefur aukin áhersla verið lögð á tengslamiðaðar nálganir í starfi með börnum þar sem litið er á hegðun sem tjáningu á þörfum og tilfinningum frekar en vandamál sem þarf að stjórna. Í því samhengi hefur þjónandi leiðsögn vakið athygli sem leið til að efla fagleg samskipti og til að styðja við jákvæða starfsmenningu í starfi með börnum. Markmið verkefnisins er að skoða hvaða áhrif þjónandi leiðsögn getur haft á samskipti og vinnubrögð starfsfólks sem vinnur með börnum. Verkefnið felst annars vegar í handbók og hinsvegar greinargerð þar sem gerð er grein fyrir fræðilegum undirstöðum þjónandi leiðsagnar. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni: Hvaða áhrif getur þjónandi leiðsögn haft á samskipti og vinnubrögð starfsfólks sem vinnur með börnum? Helstu niðurstöður benda til þess að þjónandi leiðsögn geti haft áhrif á samskipti starfsfólks með því að leggja meiri áherslu á hlýju, virðingu og jákvæðan samskiptastíl. Jafnframt getur nálgunin stuðlað að fyrirbyggjandi vinnubrögðum, auknu samræmi í teymisvinnu og skýrari faglegri ígrundun í starfi með börnum. Ályktanir benda til þess að þjónandi leiðsögn geti verið gagnlegt leiðarljós í starfi með börnum þar sem markmiðið er að skapa öruggt og styðjandi umhverfi sem eflir bæði samskipti og fagmennsku starfsfólks.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórgunnur Ása Kristinsdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52416
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52416

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórgunnur Ása Kristinsdóttir 2000-. Þjónandi leiðsögn í starfi með börnum: Greinargerð með handbók. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52416