Back to search

University of Iceland

Talnaeyjan

Abstract

dc:description.abstract

Stærðfræðinám á yngsta stigi grunnskóla leggur grunn að áframhaldandi námsárangri nemenda og viðhorfi þeirra til greinarinnar. Rannsóknir sýna að talnaskilningur, hugarreikningur og áhugahvöt eru lykilþættir í árangursríku stærðfræðinámi. Markmið þessa verkefnis var að kanna hvernig hægt er að hanna borðspil í stærðfræði sem styður við þessa þætti hjá nemendum í 3. bekk grunnskóla. Verkefnið fólst í hönnun og þróun borðspils sem byggir á fræðilegum kenningum um leik í námi, talnaskilning og áhugahvöt. Spilið samanstendur af verkefnaspilum, atburðaspilum og umbunarkerfi sem miðar að því að efla virkni og þátttöku nemenda. Við þróun spilsins var stuðst við viðurkenndar heimildir á sviði stærðfræðimenntunar og kennslufræði. Niðurstöður benda til þess að borðspil geti verið áhrifaríkt kennslutæki sem styður við talnaskilning og hugarreikning í gegnum fjölbreytt verkefni og endurtekningu í leikandi samhengi. Einnig getur slíkt kennslutæki aukið áhugahvöt nemenda og stuðlað að jákvæðara viðhorfi til stærðfræðináms. Verkefnið sýnir að hægt er að samþætta leik og nám á markvissan hátt og skapa kennslutæki sem styður við markmið Aðalnámskrár grunnskóla. Það felur í sér viðbót við kennsluaðferðir í stærðfræði og getur nýst kennurum til að efla fjölbreytni og virkni í kennslu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Andrea Kristín Bosma 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52414
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52414

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Andrea Kristín Bosma 1999-. Talnaeyjan. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52414