University of Iceland
Félagsráðgjöf og þverfagleg teymi í kjölfar hamfara á Íslandi. Viðbrögð, samstarf og áskoranir
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin er lokaverkefni til BA-gráðu í félagsráðgjöf og fjallar um hlutverk þverfaglegra teyma í hamförum á Íslandi. Áhersla er lögð á hlutverk félagsráðgjafa innan slíkra teyma og áskoranir. Þegar upp koma hamfarir skiptir samstarf ólíkra fagaðila gríðarlegu máli til að allt gangi vel fyrir sig. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hlutverk þverfaglegra teyma og skoða hvernig fagþekking félagsráðgjafa getur nýst innan slíkra teyma þegar upp koma hamfarir hér á landi. Einnig er varpað ljósi á þær áskoranir sem félagsráðgjafar kunna að standa frammi fyrir í þverfaglegum teymum. Leitast var við að svara rannsóknarspurningunni: Hvert er hlutverk þverfaglegra teyma þegar upp koma hamfarir hér á landi, hvaða hlutverki gegna félagsráðgjafar innan þeirra og hvaða áskoranir standa þeir frammi fyrir í þessu starfi? Ritgerðin er heimildaritgerð sem byggir á yfirferð og greiningu fyrirliggjandi gagna sem tengist félagsráðgjöf og þverfaglegri teymisvinnu. Hún byggir á bæði íslenskum og erlendum heimildum eins og ritrýndum fræðigreinum, rannsóknum, skýrslum, lögum og opinberum gögnum. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að þverfagleg teymi gegni lykilhlutverki í viðbrögðum við hamförum. Þær sýna einnig að félagsráðgjafar gegna mikilvægu hlutverki í þverfaglegum teymum í kjölfar hamfara. Þeir sjá meðal annars um að leggja mat á félagslegar- og sálfélagslegar þarfir einstaklinga, þeir tengja notendur við úrræði, samhæfa þjónustu og veita einstaklingum, fjölskyldum og viðkvæmum hópum stuðning. Niðurstöðurnar sýna einnig að hlutverk félagsráðgjafa í hamfarasamhengi er ekki alltaf nógu skýrt og afmarkað, starf þeirra þyrfti að vera sýnilegra innan þverfaglegra teyma. Þátttaka félagsráðgjafa í þverfaglegum teymum getur styrkt heildræna þjónustu og stuðning við einstaklinga og samfélög í kjölfar hamfara. Skýrari skilgreining á hlutverki þeirra og samræming innan viðbragðskerfa getur því stuðlað að árangursríkari hamfaraviðbrögðum á Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Natalía Dröfn Kristjánsdóttir 2002-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52310
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52310