University of Iceland
Áhættuþættir fyrir samtíma og ósamtíma æxlum í ristli og endaþarmi
Abstract
dc:description.abstractInngangur: Ristil- og endaþarmskrabbamein eru meðal algengustu krabbameina á heimsvísu og áætlað að um 5% íslendinga muni greinast með slíkt mein á lífsleiðinni. Lítill hluti sjúklinga greinast með fleiri en eitt æxli, annaðhvort samtímis (e. synchronous) eða ósamtímis það er seinna á ævinni (e.metachronous). Lítið er vitað um eðli æxla hjá þessum sjúklingum. Markmið rannsóknarinnar var að meta tíðni samtíma og ósamtíma æxla á Íslandi ásamt áhættuþáttum fyrir myndun þeirra. Aðferðir: Rannsókin var afturskyggn ferilrannsókn byggð á gögnum frá Krabbameinsskrá Íslands sem tók til allra sjúklinga sem greinst höfðu með ristil- og endaþarmskrabbamein á árunum 2000-2019. Notast var við fyrirliggjandi gögn úr fyrri rannsóknum á ristil- og endaþarmskrabbameinum. Einstaklingar með samtíma og ósamtíma æxli voru bornir saman við einstaklinga sem fengu eingöngu eitt æxli á tímabilinu. Niðurstöður: Af 2680 einstaklingum greindust 46 (1,7%) með samtíma æxli og 39 (1,5%) með ósamtíma æxli. Af þeim sem greindust með samtíma æxli og höfðu farið í erfðagreiningu reyndust 89% hafa Lynch heilkenni. Hjá sjúklingum með ósamtíma æxli var meðallengd á milli greininga tæp 7 ár þar sem 60% einstaklinga greindust eftir meira en 5 ár. Hár fylgisjúkdómastuðull (Charlson index > 2) var marktækt algengari meðal hópsins sem fékk aftur æxli á tímabilinu, 22% vs 6,9% (p < 0,001). Ályktanir: Algengi greininga á fleiri en einu ristilkrabbameini var fremur lágt líkt og í fyrri rannsóknum. Lynch er áhættuþáttur samtíma æxla og undirstrikar það mikilvægi erfðagreiningar. Meirihluti einstaklinga sem greindust með annað æxli greindust eftir meira en 5 ár. Hár fylgisjúkdómastuðll gæti bent til þess að sameiginlegir áhættuþættir geti haft áhrif á myndun síðkominna æxla.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Brynja Þorvaldsdóttir 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50521
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50521