University of Iceland
Hefur ástæða aukinnar þjónustuþarfar áhrif á útkomu fæðinga hjá konum sem fæða á Landspítala? Framskyggn ferilrannsókn
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Rannsóknir sýna að tíðni inngripa og fylgikvilla fæðinga meðal hraustra kvenna sé hærri á þverfræðilegum fæðingardeildum en á ljósmæðrastýrðum einingum eða í heimafæðingum. Til að Landspítali geti náð markmiðum sínum um að standa vörð um eðlilegar fæðingar þarf að rannsaka hvernig konum án áhættuþátta farnast á deildinni. Árið 2017 var heilsufarsflokkunarkerfi innleitt á Landspítala til að greina þjónustuþarfir kvenna en slíkt flokkunarkerfi skapar möguleika til rannsókna. Tilgangur og markmið: Tilgangur rannsóknarinnar er að styðja við þróun þjónustu við hraustar konur í fæðingarferli. Markmiðið er að kanna hvort marktækur munur sé á tíðni inngripa og fylgikvilla hjá hraustum konum sem hefja fæðingarferli á fæðingarvakt í grænum heilsufarsflokki en endurflokkast í fæðingu í rauðan flokk vegna 1/V) sterkrar verkjastillingar, 2/M) teppts framgangs og meðferðar, og 3/H) nýrra heilsufarsvandamála eða áhættuþátta. Aðferð: Rannsóknin er framvirk ferilrannsókn byggð á gögnum úr rafrænni fæðingarskráningu og heilsugátt frá 9. maí 2017 til 8. maí 2018 um allar konur sem endurflokkuðust í fæðingu á fæðingarvakt Landspítala á fyrsta ári eftir innleiðingu heilsufarsflokkunarkerfisins, alls 864 konur. Úrvinnsla gagnanna fór fram í forritinu SPSS með lýsandi tölfræði og óleiðréttri ályktunartölfræði. Niðurstöður: Fæðingarútkomur endurflokkaðra kvenna sýndu marktækan mun milli hópa. Konur í hópi V voru marktækt líklegri en konur í hinum hópunum til að verða fyrir belgjarofi í sjálfkrafa sótt, fá hita og að fóstur þeirra sýndi streitumerki. Konur í hópi M voru marktækt líklegri til að verða fyrir spangarklippingu og áhaldafæðingu. Konur í hópi H voru marktækt líklegri til að blæða meira og verða fyrir alvarlegum spangaráverkum. Ályktanir: Marktækur munur er á tíðni inngripa og fylgikvilla fæðinga eftir endurflokkunarþáttum. Þekkingin skapar grundvöll fyrir markvissari þróun þjónustu fæðingarvaktar og bætir við alþjóðlegan þekkingargrunn um tengsl inngripa og fylgikvilla í fæðingu. Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægi samtals um val á fæðingarstað, áhrif inngripa á fæðingarferli og mikilvægi samfelldrar þjónustu ljósmæðra. Lykilorð: Heilsufarsflokkun, inngrip, fæðingarútkoma, verkjastilling, tepptur framgangur, áhættuþættir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Lilja Valdimarsdóttir 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50509
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50509