Back to search

University of Iceland

Samanburður á langtímaáhrifum meðferðar með kaloríuskerðingu og efnaskiptaaðgerða hjá einstaklingum með offitu og sykursýki 2

Abstract

dc:description.abstract

Inngangur Tíðni offitu hefur aukist hratt og sjúkdómurinn er eitt helsta lýðheilsuvandamál nútímans. Sykursýki 2 hefur sterk tengsl við offitu. Þyngdartap getur haft jákvæð áhrif á blóðsykurstjórnun og valdið sjúkdómshléi á sykursýki. Efnaskiptaaðgerðir eru áhrifamikil meðferð við sykursýki og offitu. Skortur er á þekkingu á langtímaáhrifum meðferðar með mikilli kaloríuskerðingu (very low energy diet, VLED). Markmið: Að bera saman langtímaáhrif VLED og efnaskiptaaðgerða á offitu og sykursýki 2. Aðferðir: Fengin voru gögn frá BAriatic surgery SUbstitution and Nutrition study (BASUN) sem er framsýn ferilrannsókn í Svíþjóð. Þátttakendum með BMI ≥ 35 kg/m2 var safnað frá 2015- 2017. Meðferðarúrræðin voru Roux-en-Y magahjáveituaðgerð (RYGB), magaermi (SG) eða VLED. Þýðið í þessari rannsókn eru þeir 149 einstaklingar sem voru með sykursýki 2 í byrjun rannsóknartímabilsins. Eftirfylgd var 5 ár. Notað var ANOVA-próf og Tukeys post- hoc greining til að bera saman hópa. Niðurstöður: Alls luku 83 einstaklingar 5 ára eftirliti. Meðal þyngdartap í RYGB hópnum var 25,6%, 22% eftir SG og 9,2% eftir VLED. HbA1c var marktækt lægra hjá skurðaðgerðahópunum samanborið við VLED (p < 0.001) eftir 5 ár. Meðal HbA1c lækkun eftir VLED var < 2 mmól/mól. Enginn marktækur munur var á milli RYGB og SG (p = 0.806). 28 manns voru enn í sjúkdómshléi á sykursýki eftir 5 ár (17 RYGB, 9 SG og 2 VLED). Ályktanir: Þrátt fyrir að meðferð með VLED skili viðvarandi þyngdartapi hjá einstaklingum með offitu og sykursýki til lengri tíma hafa efnaskiptaaðgerðir þó betri langtímaáhrif á þyngd og blóðsykurstjórnun og eru áfram mikilvægur meðferðarkostur fyrir þennan sjúklingahóp.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Agnes Björk Brynjarsdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50458
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50458

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Agnes Björk Brynjarsdóttir 2000-. Samanburður á langtímaáhrifum meðferðar með kaloríuskerðingu og efnaskiptaaðgerða hjá einstaklingum með offitu og sykursýki 2. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50458