Back to search

University of Iceland

Aðildarhæfi opinberra lögpersóna

Abstract

dc:description.abstract

Þegar höfða á dómsmál hér á landi skiptir öllu máli að aðild sé rétt háttað. Stefna þarf réttum aðila, aðilar máls verða að hafa lögvarða hagsmuni af úrlausn máls auk þess sem ýmsum öðrum formskilyrðum þarf að vera fullnægt. Í réttri aðild felst m.a. að allir þeir sem sem eiga aðild að máli, verða að njóta aðildarhæfis, þ.e. aðili verður að uppfylla ákveðin skilyrði og teljast þar með hæfur til þess almennt að njóta aðildar að dómsmáli. Þegar einstaklingar eiga aðild að máli er jafnan ekki sérstakt álitamál hvort aðili sé aðildarhæfur, hins vegar hefur verið nokkur óvissa um hverjum eigi að stefna og hvaða aðilar njóti aðildarhæfis þegar höfða á mál á hendur aðila á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Markmið þessarar ritgerðar er að ná heildstæðu yfirliti yfir gildandi rétt um aðildarhæfi opinberra lögpersóna, en skráðar réttarreglur um efnið eru af skornum skammti. Til að ná settu markmiði verður því í ríkum mæli rýnt í dómaframkvæmd Hæstaréttar og skrif íslenskra fræðimanna um efnið og af því dregnar ályktanir. Í öðrum kafla verður farið yfir hugtakið aðildarhæfi og þýðingu þess. Í þriðja kafla verður sérstaklega rýnt í aðildarhæfi opinberra lögpersóna og greind að því marki sem dómaframkvæmd gefur færi á, þau sjónarmið sem horft er til við mat á aðildarhæfi undireinda ríkis og sveitarfélaga. Þá verður í fjórða kafla farið yfir nokkur þeirra atriða er máli skipta um rétta aðild þegar ríkið eða undireindir þess eiga í hlut. Í fimmta kafla verður farið yfir gagnrýni fræðimanna á þá stöðu sem uppi er í þessum efnum. Að lokum verða niðurstöður dregnar saman í sjötta kafla.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tanja Kristín Sindradóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49347
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49347

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tanja Kristín Sindradóttir 2001-. Aðildarhæfi opinberra lögpersóna. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49347