Back to search

University of Iceland

Þýðing á IMV Sjálfsvígsáhættu Kortlagningu (ISRFF)

Abstract

dc:description.abstract

Sjálfsvíg er alvarlegur lýðheilsuvandi og fyrir hvern einstakling sem við missum fylgir gríðarlegur harmleikur sem hefur áhrif á fjölskyldur, vini og heilu samfélögin en áætlað er að sjálfsvíg hafi bein áhrif á allt að 6.600 einstaklinga ár hvert hér á landi. Erfitt er að segja nákvæmlega til um afhverju fólk tekur þá ákvörðun að enda sitt eigið líf, en greinilegt er að þessi hegðun stafar af flóknu samspili ólíkra þátta. Þó margir áhættuþættir sjálfsvígs hafi verið greindir er það enn ekki alveg ljóst hvernig þessir þættir vinna saman og auka hættuna á sjálfsvígshegðun. Fjöldi líkana hafa verið sett fram til þess að reyna útskýra þetta flókna ferli og er Samþætta hvata- og viljalíkanið eitt af þeim. Í þessu verkefni var IMV Sjálfsvígsáhættu Kortlagning (ISRFF) þýdd yfir á íslensku ásamt fylgiskjali um notkun hennar, en lítið af upplýsingum er að finna um notkun á sjálfsvígsáhættumati hér á landi og hvaða mat eða listar séu notaðir á opinberum stofnunum. Lagt var áherslu á að þýða mælitækið og fylgiskjalið sem líkast upprunalegu útgáfunni, þó í samræmi við íslenska menningu og íslenskar málvenjur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Hlöðversdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49137
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49137

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Sigríður Hlöðversdóttir 1999-. Þýðing á IMV Sjálfsvígsáhættu Kortlagningu (ISRFF). 2025. https://hdl.handle.net/1946/49137