University of Iceland
STEAM námsgreinar og hreyfing : kennslufræðileg nálgun sem sameinar hreyfingu og nám
Abstract
dc:description.abstractÞetta verkefni er lokaverkefni til BS-prófs í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands. Verkefnið er kennslu- og fræðsluefni í formi leikjamöppu, ásamt greinargerð. Innihald verkefnisins snýr að STEAM menntun og hreyfingu fyrir börn og unglinga. Með vaxandi þróun og kröfum samfélagsins til einstaklinga þarf nám og námsumhverfi að þróast samhliða í takt. STEAM námsgreinar eru vísindi, tækni, verkfræði, stærðfræði og listgreinar. Með því að auka skilning og þekkingu nemenda á þessum tilteknu greinum er mögulegt að stuðla að frekari áhuga og vilja til þess að ná bættum árangri í tengslum við menntun. Hreyfing skiptir einnig máli í daglegu lífi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að tengsl séu á milli námsárangurs og hreyfikennslu og þess vegna er leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu í þessu verkefni: er mögulegt að hreyfing auki áhuga, getu og skilning barna á STEAM greinum? Notast var við stuðning nýjustu rannsókna í tengslum við viðfangsefnið, kennslubækur, Aðalnámskrá grunnskóla ásamt viðurkenndu kennsluefni og leikjamöppum sem tengjast hreyfingu og námi í samráði við Menntamálastofnun. Samkvæmt niðurstöðum þessa verkefnis þá getur samþætting hreyfingu og náms boðið upp á ýmsa möguleika til þess að brjóta upp hefðbundna kennslu með fjölbreyttum, skemmtilegum og árangursríkum hætti. Þannig getur hreyfing ýtt undir áhuga og skilning á STEAM greinum og þ.a.l. undirbúið nemendur á viðeigandi og skapandi hátt undir framtíðina. Leikjamappan sem fylgir greinargerðinni er hönnuð og þróuð í þeim tilgangi að veita kennurum og starfsfólki grunnskóla innblástur til þess að auka og efla hreyfingu samhliða námi. Við vonumst til að kennsluefnið nýtist á sem bestan mögulegastan hátt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Tinna Dögg Benediktsdóttir 1988-
- Sigríður Ingibjörg Jónsdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48430
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48430