Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um skólaforðun og þær afleiðingar sem hún hefur í för með sér. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að afla þekkingar á því hverjar væri helstu afleiðingar skólaforðunar. Ásamt því að greina orsakir, birtingarmyndir og úrræði skólaforðunar. Leitast var við svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hverjar eru helstu afleiðingar skólaskorðunar? Skólaforðun er hegðun sem kemur fram hjá nemanda sem er með slaka skólasókn. Þegar farið er dýpra inn í hugtakið skólaforðun þarf að skoða marga mismunandi hætti sem fylgja henni. Orsakir, birtingarmyndir og afleiðingar geta gefið skýra mynd á því hvað nemandinn er að ganga í gegnum og hvaða úrræði henti honum best á því stigi skólaforðunar sem hann er á. Í samfélaginu eru nemendur sem eiga í erfiðleikum með að mæta í skólann. Það getur verið miserfitt fyrir hvern og einn, sumir eiga auðvelt með að sækja skóla en aðrir ekki. Orsakir þess að nemandi mæti sjaldan eða ekkert í skólann geta verið af ýmsu tagi. Þegar fyrstu einkenni skólaforðunar birtast er mikilvægt að greina hver ástæðan er, til að hægt sé að bregðast við og takast á við vandamálið sem á sér stað hjá nemandanum. Ljóst er að skólaforðun hefur í för með sér fjölda skammtíma- og langtímaafleiðingar en geta vera mismunandi milli hvers og eins nemanda. Til að koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar er mikilvægt að vera með úrræði sem grípa þessa nemendur. Helstu niðurstöður sýna fram á að skólaforðun getur haft í för með sér mjög alvarlegar afleiðingar og grípa þarf til úrræða innan veggja skólans til að koma í veg fyrir að vandinn verði ekki stærri.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Herdís Hallsteinsdóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46509
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46509