Back to search

University of Iceland

Losun kolefnis í framræstum mýrum á Norðurlandi

Abstract

dc:description.abstract

Mómýrar gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í kolefnishringrásinni og því í loftslagsmálum en framræsla á mýrum getur valdið umtalsverðri losun gróðurhúsalofttegunda. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að kanna kolefnislosun í þremur framræstum mýrum á Norðurlandi. Rannsakað verður hvort breytileiki sé á kolefnislosun milli og innan mýranna þriggja og leitast verður eftir því að skýra hvaða áhrifaþættir liggi þar mögulega að baki. Þeir áhrifaþættir sem eru sérstaklega teknir til skoðunar eru loftslag, vatnsbúskapur, gróðurfar, efnasamsetning kolefnis, sýrustig og fjarlægð frá áfoksuppsprettum. Til að ná markmiðum rannsóknarinnar var kolefnislosun mæld með gastæki á vettvangi, vatnssýni tekin til að mæla styrk uppleysts lífræns kolefnis í mýrunum og jarðvegssýni tekin úr efstu 30 cm jarðvegsins til ákvörðunar á hlutfalli steinefna og kolefnisforða. Þetta var gert með þessum hætti til að fá heildræna mynd af kolefnislosun mýranna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á talsverðan breytileika í losun kolefnis milli og innan mýra. Losun kolefnis í formi CO2 var mun meiri í mýrunum tveimur nærri áfoksuppsprettum en þar var hlutfall steinefna í jarðveginum hærra og kolefnisforði lægri. Styrkur DOC var aftur á móti afgerandi mestur í mýrinni nyrst og fjærst áfoksuppsprettum þar sem kolefnisforði var meiri, og sýrustig og vatnsstaða lægri. Líklegir áhrifaþættir á breytileika kolefnislosunarinnar milli og innan mýranna þriggja eru loftslag, þ.m.t. jarðvegshitastig og vatnsbúskapur, fjarlægð frá áfoksuppsprettum, sýrustig og efnasamsetning kolefnis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Marta Carrasco 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46260
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46260

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Marta Carrasco 1999-. Losun kolefnis í framræstum mýrum á Norðurlandi. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46260