Abstract
dc:description.abstract„Z“ í íslensku ritmáli frá öndverðu til okkar daga Þessi ritgerð er lögð fram til meistaraprófs í íslenskri málfræði við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Efni hennar er athugun á notkun táknsins „z“ og hlutverki þess í íslensku ritmáli, allt frá því að „z“ birtist í elstu handritsbrotum frá miðri 12. öld og þar til hún var aflögð í skólastarfi og opinberum gögnum með stjórnvaldsaðgerð 1973. Ekki var þó öll sagan sögð með því og á Alþingi Íslendinga var í nokkur ár eftir það háð barátta fyrir upptöku „z“ á ný en um þá sögu er einnig fjallað. Í samtíma okkar er „z“ sjaldséð í íslenskum textum en saga þessa tákns reyndist margbrotin. Í handritum miðalda frá 13. öld og fram yfir miðja 16. öld var „z“ rituð við margvísleg skilyrði, í fyrstu aðallega sem tákn hljóðasambandanna ds, ts og ðs en fljótlega mun „z“ hafa staðið fyrir s eingöngu í þessu umhverfi og tannhljóðin þá oft einnig rituð („dz“, „tz“). Í vissum tilvikum entist þessi ritháttur fram á 17. öld. Frá 12. öld og vel fram á 16. öld tíðkaðist einnig ritunin „llz“ og „nnz“ í klösunum lls og nns. Á 13. öld hófst ritun „z“ fyrir miðmyndarmerkið st og í efstastigsviðskeytinu ast, og í þrjár aldir var „z“ notuð í merkjum miðmyndar og efstastigs en ritun þeirra var með ýmsu móti. Á 17. öld var „z“ orðin fremur sjaldséð í textum og hvarf nokkru síðar alveg uns málvísindamenn hófu að nota táknið aftur um miðja 19. öld en þaðan í frá urðu reglur um ritun „z“ sem meitlaðar í stein hjá lærðum mönnum í fimm aldarfjórðunga uns bókstafurinn hvarf á ný úr ritmálinu. Verkefnið fólst í að greina hlutverk og notkun „z“ frá fyrstu tíð og fram undir hin fyrri endalok hennar og athuga hvers vegna ritun hennar var þá hætt, svo og að meta hvaða ástæður voru fyrir því að „z“ var aftur tekin upp í íslenskri stafsetningu og hvaða rannsóknir lágu að baki reglunum sem þá voru settar. Einnig var athugað hvaða þættir urðu helst til þess að reglur um ritun „z“ í opinberum gögnum og skólastarfi voru afnumdar fyrir réttum fimmtíu árum og sagt frá deilunum sem fylgdu í kjölfarið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Alda B. Möller 1948-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46055
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46055