Back to search

University of Iceland

Slökkvilið á landsbyggðinni. Eru byggðasamlög lausnin?

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að greina stöðu slökkviliða á landsbyggðinni eftir því hversu vel þau uppfylla lögbundnar kröfur sem gerðar eru til starfsemi þeirra. Sérstaklega verður skoðað hvort rekstrarfyrirkomulag hafi þar áhrif og hvort munur er á slökkviliðum sem rekin eru í byggðasamlagi eða af einstöku sveitarfélagi. Á grunni þessara niðurstaðna verður einnig lagt mat á hvort samstarf um rekstur slökkviliða í formi byggðasamlags geti auðveldað þeim að uppfylla lögbundnar kröfur. Rannsóknin er verkefnamat sem felur í sér mat á opinberu verkefni og eru niðurstöðurnar til þess fallnar að vera til leiðsagnar um nauðsynlegar úrbætur eða breytingar sem mögulega þarf að ráðast í til að bæta gæði starfseminnar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að staða slökkviliða á landsbyggðinni er breytileg á milli sveitarfélaga þegar kemur að því að uppfylla lögbundnar kröfur. Minni slökkvilið standa hallari fæti þegar kemur að rekstri og skýr tenging er á milli þess hversu vel þau uppfylla lögbundnar kröfur og þeirra fjármuna sem sveitarfélögin hafa til ráðstöfunar við reksturinn. Í samanburði milli slökkviliða má sjá merki um að staða meirihluta slökkviliða sem rekin eru í byggðasamlagi er heldur betri en hjá öðrum minni liðum á landsbyggðinni. Niðurstöðurnar sýna einnig að áður en ákvörðun er tekin um hvort byggðasamlag sé leiðin til að bæta starfsemi slökkviliðs svo þau uppfylli betur lögbundnar kröfur eru ákveðnir lykilþættir sem huga þarf að áður en slík ákvörðun er tekin. Í fyrsta lagi má nefna tengingu á milli lögbundinna krafna og þeirra fjármuna sem sveitarfélögin ráðstafa í reksturinn. Samvinna sveitarfélaga nægir ekki endilega ein og sér heldur þurfa viðeigandi fjármunir að fylgja svo unnt sé að mæta lögbundnum kröfum. Í annan stað er nauðsynlegt að sveitarfélög meti áhættu á sínu svæði svo unnt sé að taka afstöðu til þess hvernig skipulagi slökkviliðs og stærð þess skuli háttað en slíkt mat leggur einnig grunn að brunavarnaáætlun fyrir svæðið. Í þriðja lagi er nauðsynlegt að skoða aðstæður á svæðinu með íbúafjölda í huga, ásamt landfræðilegum þáttum, samgöngum og vegalengdum, sem kunna að hafa áhrif á starfsemi slökkviliðs. Sé niðurstaðan sú að mynda byggðasamlag í kringum starfsemina ættu að skapast faglegri og rekstrarleg tækifæri til að bæta gæði þjónustunnar og tryggja samlegðaráhrifin sem rekstrarforminu kunna að fylgja. Í þeim tilgangi að gera slökkviliðum og sveitarfélögum betur kleift að uppfylla lögbundnar kröfur sem gerðar eru til starfseminnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Regína Valdimarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43140
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43140

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Regína Valdimarsdóttir 1986-. Slökkvilið á landsbyggðinni. Eru byggðasamlög lausnin?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43140