Back to search

University of Iceland

Vímuefnaneysla í æð: Rannsókn á notuðum sprautunálum í Reykjavík

Abstract

dc:description.abstract

Vímuefnaneysla í æð er veigamikill áhrifaþáttur í ótímabærum veikindum á heimsvísu. Rannsóknir á vímuefnaneyslu í æð byggja að miklu leyti á frásögnum einstaklinga á meðferðarstofnunum, lítið er því vitað um þá sem nota vímuefni í æð en leita sér ekki lækninga. Rannsóknin byggir á evrópskri samvinnurannsókn (ESCAPE) sem sett var á laggirnar til að fylgjast með hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði með efnafræðilegri greiningu. Með aukinni vitneskju um hvaða vímuefni eru í notkun má bæta skaðaminnkandi þjónustu við einstaklinga sem nota vímuefni í æð og draga úr skaðlegum áhrifum neyslunnar. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði sem skilað er til förgunar, hvaða efni er algengast að finna og algengi þess að fleiri en eitt efni finnist í hverri sprautu. Efniviður og aðferðir: Notuðum sprautubúnaði var safnað frá október 2021 til mars 2022 í Reykjavík. Engin samskipti voru milli notenda sprautubúnaðarins og þess sem aflaði gagna. Ein sprauta var tekin úr hverju nálaboxi til að lágmarka líkur á að fleiri en eitt sýni fengist frá sama einstaklingi. Alls var 203 sýnum var safnað á tímabilinu. Eftir sýnameðhöndlun voru efnin greind með gasgreini sem tengdur er massaskynjara (GC/MS) og niðurstöður metnar með Masshunter hugbúnaði með aðstoð staðalefna helstu fíkniefna á markaði. Niðurstöður: Alls fundust 10 mismunandi vímuefni og fjögur mismunandi íblöndunarefni í sprautunum. Metýlfenídat var algengasta vímuefnið en það fannst í 105 sprautum (51,7%). Önnur örvandi efni fundust í um 42% sprauta og ópíóíðar í um þriðjungi sprauta. Engin efni fundust í þremur sprautum. Algengasta íblöndunarefnið var koffín en það fannst í 86 sprautum (42,4%). Rúmlega helmingur sprauta (54,2%) innihélt tvö eða fleiri vímuefni eða íblöndunarefni. Ályktanir: Í Reykjavík er metýlfenídat mun algengara til vímuefnaneyslu í æð samanborið við niðurstöður ESCAPE. Heróín, búprenorfín og katínónar voru með algengustu efnum í ESCAPE en fundust ekki í Reykjavík. Neyslan virðist blönduð, um helmingur sprauta í ESCAPE innihélt fleiri en eitt vímuefni en tæplega þriðjungur í Reykjavík. Algengt var að sjá blöndu með örvandi vímuefni og ópíóíða en einnig blöndu örvandi vímuefna. Íblöndunarefni eru algeng og ekki er víst að notendur séu meðvitaðir um það.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjördís Tinna Pálmadóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41242
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41242

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjördís Tinna Pálmadóttir 1997-. Vímuefnaneysla í æð: Rannsókn á notuðum sprautunálum í Reykjavík. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41242