{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/41242"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/41242","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Vímuefnaneysla í æð: Rannsókn á notuðum sprautunálum í Reykjavík","abstract":"Vímuefnaneysla í æð er veigamikill áhrifaþáttur í ótímabærum veikindum á heimsvísu. Rannsóknir á vímuefnaneyslu í æð byggja að miklu leyti á frásögnum einstaklinga á meðferðarstofnunum, lítið er því vitað um þá sem nota vímuefni í æð en leita sér ekki lækninga. Rannsóknin byggir á evrópskri samvinnurannsókn (ESCAPE) sem sett var á laggirnar til að fylgjast með hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði með efnafræðilegri greiningu. Með aukinni vitneskju um hvaða vímuefni eru í notkun má bæta skaðaminnkandi þjónustu við einstaklinga sem nota vímuefni í æð og draga úr skaðlegum áhrifum neyslunnar. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði sem skilað er til förgunar, hvaða efni er algengast að finna og algengi þess að fleiri en eitt efni finnist í hverri sprautu. Efniviður og aðferðir: Notuðum sprautubúnaði var safnað frá október 2021 til mars 2022 í Reykjavík. Engin samskipti voru milli notenda sprautubúnaðarins og þess sem aflaði gagna. Ein sprauta var tekin úr hverju nálaboxi til að lágmarka líkur á að fleiri en eitt sýni fengist frá sama einstaklingi. Alls var 203 sýnum var safnað á tímabilinu. Eftir sýnameðhöndlun voru efnin greind með gasgreini sem tengdur er massaskynjara (GC/MS) og niðurstöður metnar með Masshunter hugbúnaði með aðstoð staðalefna helstu fíkniefna á markaði. Niðurstöður: Alls fundust 10 mismunandi vímuefni og fjögur mismunandi íblöndunarefni í sprautunum. Metýlfenídat var algengasta vímuefnið en það fannst í 105 sprautum (51,7%). Önnur örvandi efni fundust í um 42% sprauta og ópíóíðar í um þriðjungi sprauta. Engin efni fundust í þremur sprautum. Algengasta íblöndunarefnið var koffín en það fannst í 86 sprautum (42,4%). Rúmlega helmingur sprauta (54,2%) innihélt tvö eða fleiri vímuefni eða íblöndunarefni. Ályktanir: Í Reykjavík er metýlfenídat mun algengara til vímuefnaneyslu í æð samanborið við niðurstöður ESCAPE. Heróín, búprenorfín og katínónar voru með algengustu efnum í ESCAPE en fundust ekki í Reykjavík. Neyslan virðist blönduð, um helmingur sprauta í ESCAPE innihélt fleiri en eitt vímuefni en tæplega þriðjungur í Reykjavík. Algengt var að sjá blöndu með örvandi vímuefni og ópíóíða en einnig blöndu örvandi vímuefna. Íblöndunarefni eru algeng og ekki er víst að notendur séu meðvitaðir um það.","abstract_html":"Vímuefnaneysla í æð er veigamikill áhrifaþáttur í ótímabærum veikindum á heimsvísu. Rannsóknir á vímuefnaneyslu í æð byggja að miklu leyti á frásögnum einstaklinga á meðferðarstofnunum, lítið er því vitað um þá sem nota vímuefni í æð en leita sér ekki lækninga. Rannsóknin byggir á evrópskri samvinnurannsókn (ESCAPE) sem sett var á laggirnar til að fylgjast með hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði með efnafræðilegri greiningu. Með aukinni vitneskju um hvaða vímuefni eru í notkun má bæta skaðaminnkandi þjónustu við einstaklinga sem nota vímuefni í æð og draga úr skaðlegum áhrifum neyslunnar. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði sem skilað er til förgunar, hvaða efni er algengast að finna og algengi þess að fleiri en eitt efni finnist í hverri sprautu. Efniviður og aðferðir: Notuðum sprautubúnaði var safnað frá október 2021 til mars 2022 í Reykjavík. Engin samskipti voru milli notenda sprautubúnaðarins og þess sem aflaði gagna. Ein sprauta var tekin úr hverju nálaboxi til að lágmarka líkur á að fleiri en eitt sýni fengist frá sama einstaklingi. Alls var 203 sýnum var safnað á tímabilinu. Eftir sýnameðhöndlun voru efnin greind með gasgreini sem tengdur er massaskynjara (GC/MS) og niðurstöður metnar með Masshunter hugbúnaði með aðstoð staðalefna helstu fíkniefna á markaði. Niðurstöður: Alls fundust 10 mismunandi vímuefni og fjögur mismunandi íblöndunarefni í sprautunum. Metýlfenídat var algengasta vímuefnið en það fannst í 105 sprautum (51,7%). Önnur örvandi efni fundust í um 42% sprauta og ópíóíðar í um þriðjungi sprauta. Engin efni fundust í þremur sprautum. Algengasta íblöndunarefnið var koffín en það fannst í 86 sprautum (42,4%). Rúmlega helmingur sprauta (54,2%) innihélt tvö eða fleiri vímuefni eða íblöndunarefni. Ályktanir: Í Reykjavík er metýlfenídat mun algengara til vímuefnaneyslu í æð samanborið við niðurstöður ESCAPE. Heróín, búprenorfín og katínónar voru með algengustu efnum í ESCAPE en fundust ekki í Reykjavík. Neyslan virðist blönduð, um helmingur sprauta í ESCAPE innihélt fleiri en eitt vímuefni en tæplega þriðjungur í Reykjavík. Algengt var að sjá blöndu með örvandi vímuefni og ópíóíða en einnig blöndu örvandi vímuefna. Íblöndunarefni eru algeng og ekki er víst að notendur séu meðvitaðir um það.","abstract_has_math":false,"creators":["Hjördís Tinna Pálmadóttir 1997-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2022,"date_issued":"2022-05-16T07:54:14Z","date_published":"2022-05-16T07:54:14Z","updated_at":"2026-07-27T21:42:56Z","subjects":["Læknisfræði","Fíkniefnaneytendur","Sprautunálar"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/41242","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Hjördís Tinna Pálmadóttir 1997-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2022-05-16T07:54:12Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2022-05-16T07:54:12Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2022-05-16T07:54:14Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Læknisfræði","Fíkniefnaneytendur","Sprautunálar"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/41242"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Vímuefnaneysla í æð er veigamikill áhrifaþáttur í ótímabærum veikindum á heimsvísu. Rannsóknir á vímuefnaneyslu í æð byggja að miklu leyti á frásögnum einstaklinga á meðferðarstofnunum, lítið er því vitað um þá sem nota vímuefni í æð en leita sér ekki lækninga. Rannsóknin byggir á evrópskri samvinnurannsókn (ESCAPE) sem sett var á laggirnar til að fylgjast með hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði með efnafræðilegri greiningu. Með aukinni vitneskju um hvaða vímuefni eru í notkun má bæta skaðaminnkandi þjónustu við einstaklinga sem nota vímuefni í æð og draga úr skaðlegum áhrifum neyslunnar. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði sem skilað er til förgunar, hvaða efni er algengast að finna og algengi þess að fleiri en eitt efni finnist í hverri sprautu. Efniviður og aðferðir: Notuðum sprautubúnaði var safnað frá október 2021 til mars 2022 í Reykjavík. Engin samskipti voru milli notenda sprautubúnaðarins og þess sem aflaði gagna. Ein sprauta var tekin úr hverju nálaboxi til að lágmarka líkur á að fleiri en eitt sýni fengist frá sama einstaklingi. Alls var 203 sýnum var safnað á tímabilinu. Eftir sýnameðhöndlun voru efnin greind með gasgreini sem tengdur er massaskynjara (GC/MS) og niðurstöður metnar með Masshunter hugbúnaði með aðstoð staðalefna helstu fíkniefna á markaði. Niðurstöður: Alls fundust 10 mismunandi vímuefni og fjögur mismunandi íblöndunarefni í sprautunum. Metýlfenídat var algengasta vímuefnið en það fannst í 105 sprautum (51,7%). Önnur örvandi efni fundust í um 42% sprauta og ópíóíðar í um þriðjungi sprauta. Engin efni fundust í þremur sprautum. Algengasta íblöndunarefnið var koffín en það fannst í 86 sprautum (42,4%). Rúmlega helmingur sprauta (54,2%) innihélt tvö eða fleiri vímuefni eða íblöndunarefni. Ályktanir: Í Reykjavík er metýlfenídat mun algengara til vímuefnaneyslu í æð samanborið við niðurstöður ESCAPE. Heróín, búprenorfín og katínónar voru með algengustu efnum í ESCAPE en fundust ekki í Reykjavík. Neyslan virðist blönduð, um helmingur sprauta í ESCAPE innihélt fleiri en eitt vímuefni en tæplega þriðjungur í Reykjavík. Algengt var að sjá blöndu með örvandi vímuefni og ópíóíða en einnig blöndu örvandi vímuefna. Íblöndunarefni eru algeng og ekki er víst að notendur séu meðvitaðir um það."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Vímuefnaneysla í æð: Rannsókn á notuðum sprautunálum í Reykjavík"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Hjördís Tinna Pálmadóttir 1997-"],"dc:date.accessioned":["2022-05-16T07:54:12Z"],"dc:date.available":["2022-05-16T07:54:12Z"],"dc:date.issued":["2022-05-16T07:54:14Z"],"dc:description.abstract":["Vímuefnaneysla í æð er veigamikill áhrifaþáttur í ótímabærum veikindum á heimsvísu. Rannsóknir á vímuefnaneyslu í æð byggja að miklu leyti á frásögnum einstaklinga á meðferðarstofnunum, lítið er því vitað um þá sem nota vímuefni í æð en leita sér ekki lækninga. Rannsóknin byggir á evrópskri samvinnurannsókn (ESCAPE) sem sett var á laggirnar til að fylgjast með hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði með efnafræðilegri greiningu. Með aukinni vitneskju um hvaða vímuefni eru í notkun má bæta skaðaminnkandi þjónustu við einstaklinga sem nota vímuefni í æð og draga úr skaðlegum áhrifum neyslunnar. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði sem skilað er til förgunar, hvaða efni er algengast að finna og algengi þess að fleiri en eitt efni finnist í hverri sprautu. Efniviður og aðferðir: Notuðum sprautubúnaði var safnað frá október 2021 til mars 2022 í Reykjavík. Engin samskipti voru milli notenda sprautubúnaðarins og þess sem aflaði gagna. Ein sprauta var tekin úr hverju nálaboxi til að lágmarka líkur á að fleiri en eitt sýni fengist frá sama einstaklingi. Alls var 203 sýnum var safnað á tímabilinu. Eftir sýnameðhöndlun voru efnin greind með gasgreini sem tengdur er massaskynjara (GC/MS) og niðurstöður metnar með Masshunter hugbúnaði með aðstoð staðalefna helstu fíkniefna á markaði. Niðurstöður: Alls fundust 10 mismunandi vímuefni og fjögur mismunandi íblöndunarefni í sprautunum. Metýlfenídat var algengasta vímuefnið en það fannst í 105 sprautum (51,7%). Önnur örvandi efni fundust í um 42% sprauta og ópíóíðar í um þriðjungi sprauta. Engin efni fundust í þremur sprautum. Algengasta íblöndunarefnið var koffín en það fannst í 86 sprautum (42,4%). Rúmlega helmingur sprauta (54,2%) innihélt tvö eða fleiri vímuefni eða íblöndunarefni. Ályktanir: Í Reykjavík er metýlfenídat mun algengara til vímuefnaneyslu í æð samanborið við niðurstöður ESCAPE. Heróín, búprenorfín og katínónar voru með algengustu efnum í ESCAPE en fundust ekki í Reykjavík. Neyslan virðist blönduð, um helmingur sprauta í ESCAPE innihélt fleiri en eitt vímuefni en tæplega þriðjungur í Reykjavík. Algengt var að sjá blöndu með örvandi vímuefni og ópíóíða en einnig blöndu örvandi vímuefna. Íblöndunarefni eru algeng og ekki er víst að notendur séu meðvitaðir um það."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/41242"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Læknisfræði","Fíkniefnaneytendur","Sprautunálar"],"dc:title":["Vímuefnaneysla í æð: Rannsókn á notuðum sprautunálum í Reykjavík"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:42:56Z"}