Back to search

University of Iceland

„Ennþá snýst þetta um fólkið okkar og árangur vinnustaðarins“ Áhrif Covid-19 heimsfaraldursins á mannauðsstjórnun

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um mannauðsstjórnun á tímum Covid-19 heimsfaraldurs. Markmiðið var að afla skilnings og þekkingar á reynslu mannauðsstjóra í heimsfaraldrinum, rýna í þau áhrif sem faraldurinn hafði á starf þeirra og afla upplýsinga um hvernig þeir sjá málaflokkinn þróast til framtíðar. Framkvæmd var eigindleg viðtalsrannsókn, þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við níu starfandi mannauðsstjóra hjá litlum, meðalstórum og stórum skipulagsheildum sem voru ýmist starfandi í einkageiranum eða á opinberum vettvangi. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að meginhlutverk mannauðsstjóra hafi ekki tekið miklum breytingum vegna Covid-19, en að starfið hafi orðið veigameira, flóknara og krafist aukins sveigjanleika. Heimsfaraldurinn hefur leitt til breytts vinnuumhverfis og nýrra starfshátta, sem fela í sér ýmis tækifæri en einnig áskoranir fyrir mannauðsstjóra. Niðurstöður benda jafnframt til þess að í framtíðinni muni hlutverk mannauðsstjóra einkennast í vaxandi mæli af ráðgjöf og stuðning við þá sem eru með mannaforráð og að mannauðsstjórnun verði hluti af almennri stjórnun innan skipulagsheilda. Sýn þátttakenda á framtíð málaflokksins er mismunandi. Mikill meirihluti þátttakenda taldi að mannauðsstjórnun myndi þróast, eflast og taka miklum breytingum til framtíðar. Mun færri sáu fyrir sér að mannauðsstjórnun færi í sama horf og fyrir Covid-19. Hins vegar var sameiginleg niðurstaða allra að stafrænar lausnir væru komnar til að vera. Helsti lærdómur af rannsókninni er að þrátt fyrir fordæmalausar og erfiðar aðstæður hafi mannauðsstjórar ekki misst sjónar á meginhlutverki sínu heldur sýnt sveigjanleika, verið úrræðagóðir og lausnamiðaðir til að varðveita öryggi og líðan starfsfólks og tryggja árangur skipulagsheildar sinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rannveig Ólafsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39873
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39873

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rannveig Ólafsdóttir 1992-. „Ennþá snýst þetta um fólkið okkar og árangur vinnustaðarins“ Áhrif Covid-19 heimsfaraldursins á mannauðsstjórnun. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39873