University of Iceland
Hjúkrunarfræðingar sem annars stigs þolendur óvæntra atvika. Fræðileg samantekt
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Fyrirbærið annars stigs þolandi er fremur nýtt í umræðunni en það vísar til heilbrigðisstarfsmanns sem á hlutdeild í óvæntu atviki sem getur haft afleiðingar fyrir hann ekki síður en sjúkling. Hjúkrunarfræðingar eru í mikilli hættu á að verða annars stigs þolendur óvæntra atvika vegna nálægðar sinnar við skjólstæðinga. Markmið: Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á fyrirliggjandi þekkingu á hjúkrunarfræðingum sem annars stigs þolendur óvæntra atvika í heilbrigðisþjónustu. Aðferð: Um fræðilega samantekt er að ræða. Heimildaleit var gerð í gagnagrunnunum Scopus og PubMed, auk þess sem snjóboltaaðferðin var notuð. Leit takmarkaðist við heimildir á ensku og íslensku birtar á árunum 2016-2021. Við leit fundust 36 heimildir og uppfylltu 13 þeirra inntökuskilyrðin og voru notaðar í samantektinni. Við greiningu á heimildum var stuðst við PRISMA flæðirit. Niðurstöður: Þær rannsóknir sem hafa verið gerðar á hjúkrunarfræðingum sem annars stigs þolendum, koma frá mismunandi löndum en flestar eru frá Bandaríkjunum. Tilgangur flestra rannsóknanna var að skoða einkenni hjá hjúkrunarfræðingum sem upplifa sig sem annars stigs þolendur, afleiðingar þess og stuðning. Margir hjúkrunarfræðingar gera alvarleg mistök sem leiða til óvænts atviks að minnsta kosti einu sinni á sinni starfsævi. Flest óvænt atvik sem verða tengjast lyfjagjöfum og gerast yfirleitt vegna þess að hjúkrunarfræðingar er undir miklu álagi vegna manneklu sem leiðir til þreytu og álags í vinnu. Einkenni annars stigs þolenda eru bæði líkamleg og andleg, svo sem hræðsla, óöryggi, skert sjálfstraust og svefntruflanir. Reynsla hjúkrunarfræðinga sem annars stigs þolendur hefur því neikvæð áhrif á líf þeirra, eykur líkur á kulnun í starfi og brottfalli úr stéttinni. Stuðningur er grundvallaratriði til að koma einstaklingi upp úr því að vera annars stig þolandi og þarf að veita þennan stuðning eins og fljótt og hægt er. Umræður/ályktun: Afleiðingar óvæntra atvika á hjúkrunarfræðinga sem annars stigs þolendur eru alvarlegar fyrir einstaklingana og heilbrigðiskerfið. Tryggja þarf uppbyggileg viðbrögð og viðeigandi stuðning við hjúkrunarfræðinga sem upplifa sig sem annars stigs þolendur óvæntra atvika. Opna þarf umræðuna um annars stigs þolendur óvæntra atvika í heilbrigðiskerfinu, þá sérstaklega meðal hjúkrunarfræðinga, nemenda og kennara í hjúkrunarfræði. Þörf er á frekari rannsóknum á viðfangsefninu bæði hérlendis sem og erlendis. Lykilorð: Annars stigs þolendur, hjúkrunarfræðingar, kannanir, rannsóknir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Valdís Ösp Gísladóttir 1990-
- Ingimunda Hersisdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38445
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38445