Back to search

University of Iceland

Íslensk ferðaþjónusta og Hollenska veikin. Að hvaða leyti má sjá einkenni Hollensku veikinnar í vexti ferðaþjónustu?

Abstract

dc:description.abstract

Útflutningur Íslands hefur lengi verið auðlindadrifinn og sveiflukenndur og á því eru litlar breytingar í vændum. Núna er kominn nýr auðlindadrifinn forystusauður í tekjuöflun landsins í erlendri mynt, ferðaþjónustan. Uppgangur greinarinnar hefur valdið mikilli þenslu og álagi á innviði landsins þó hún hafi einnig verið bjargvættur landsins eftir kreppuna árið 2008. Mikil aukning ferðamanna hefur komið framleiðsluþáttum landsins að þolmörkum, til að mynda með launaskriði sem hefur einkennt áratuginn og mikil spenna hefur verið á vinnumarkaði. Ferðaþjónusta er vinnuaflsfrek atvinnugrein og hefur því sett sitt merki á launaþróun ásamt því að útflutningstekjuvöxturinn var svo ör að raungengið hækkaði í sambærilegar hæðir og fyrir hrun. Í kjölfarið mynduðust erfiðar aðstæður fyrir útflutningsgreinar landsins og ekki síst leiðandi fyrirtækja innan ferðaþjónustu. Gjaldeyrisáhætta flugfélaganna dró allverulega úr arðsemi þeirra sem og allra fyrirtækja sem öfluðu tekna í erlendum gjaldmiðli en höfðu kostnaðarliði í íslensku krónunni. Einkenni Hollensku veikinnar eru því komnar fram í íslensku hagkerfi og lausnir á dramatískum sveiflum í útflutningstekjum er ábótavant.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Mikael Jóhann Karlsson 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38173
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38173

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Mikael Jóhann Karlsson 1995-. Íslensk ferðaþjónusta og Hollenska veikin. Að hvaða leyti má sjá einkenni Hollensku veikinnar í vexti ferðaþjónustu?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38173